EN
Heim
Hafa samband
19:52|19. maí 2012

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

1. maí hátíðarhöld 1. maí hátíðahöld á Akureyri hefjast kl. 14:00 með kröfugöngu frá Alþýðuhúsinu, en í ár verður gengið að Menningarhúsinu Hofi þar sem

1. maí hátíðarhöld

1. maí hátíðahöld á Akureyri hefjast kl. 14:00 með kröfugöngu frá Alþýðuhúsinu, en í ár verður gengið að Menningarhúsinu Hofi þar sem hátíðardagskrá fer fram. Við hvetjum alla til að mæta og er fólk beðið um að safnast saman við Alþýðuhúsið kl. 13:30 þar sem gangan leggur af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar.

Kjörorð dagsins eru „RÉTTLÁTT ÞJÓÐFÉLAG"

Hákon Hákonarson, formaður FMA, mun flytja ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna.

Aðalræðumaður dagsins er Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.

Einnig verður skemmtidagskrá, kaffiveitingar og happadrætti.

Skemmtidagskráin verður með Kristjáni Edelstein og Pétri Kristjánssyni, atriðum úr söngleiknum „Hárinu" og Hymnodiu undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar.

 



Könnun

Engin könnun skráð

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 12
Samtals: 217305

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf