Rekstrarkostnaður tryggingafélaga byggir að mjög stórum hluta á launakostnaði og þegar álögur í þeim efnum hækka jafn mikið og nú er lagt á ráðin um, getur það haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir starfsfólk fyrirtækjanna. Það er eindæmi að stjórnvöld á Íslandi leggi auknar álögur á eina starfsstétt umfram aðra með þessum hætti og setji starfsöryggi hennar um leið í algjört uppnám.
Undirrituð hvetja Alþingi Íslendinga til þess að endurskoða þær fyrirætlanir sem felast í þessum skatti og tryggja að við tekjuöflun ríkissjóðs sé jafnræðis gætt milli borgaranna og ekki vegið með harkalegum hætti að tilteknum hópum fólks í landinu. Allar aðgerðir hins opinbera í dag hljóta að miða að fjölgun starfa en ekki fækkun líkt og þessar álögur munu að öllum líkindum hafa í för með sér.
Reykjavík, 14. desember 2011
Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM
Stefán Einar Stefánsson, formaður VR og LÍV


