6.01 2012
Formenn félaga innan ASÍ komu saman til fundar í gær til að ræða forsendur kjarasamninga
en fyrri endurskoðun kjarasamninganna á að vera lokið 20. janúar nk. Á heimasíðu ASÍ segir að efnahagslegar forsendur standast
ágætlega en þegar kemur að loforðum ríkisstjórnarinnar sem sett voru fram í sérstakri yfirlýsingu 5. maí í tengslum við
gerð kjarasamningana stendur varla steinn yfir steini. Hörð gagnrýni kom fram á stjórnvöld á fundinum.
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ fór yfir stöðu mála nú sléttum átta mánuðum eftir undirritun kjarasamninganna. Í
máli hans kom fram að meginforsenda samninganna hefur staðist, þ.e. kaupmáttur hefur aukist. Há verðbólga er hins vegar áhyggjuefni eins og
lítil styrking krónunnar. Spár gera þó ráð fyrir að verðbólga lækki hratt með vorinu. Það kom hins vegar fram í
máli Gylfa að sérstakt áhyggjuefni væri það sem snýr að yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem var gerð í tengslum
við kjarasamningana. Þar hallar verulega á stjórnvöld og vissulega tilefni til að segja upp kjarasamningum að mati forseta ASÍ. Ber þar hæst
svik um að hækkun bóta almannatrygginga og atvinnuleysisbóta verði í takt við launahækkanir 1. febrúar nk. og skattlagningu á
lífeyrissjóði á almennum markaði sem þýðir að óbreyttu skerðingu lífeyris félagsmanna ASÍ.
Það er ljóst að verkalýðshreyfingin verður að fara í viðræður við ríkisstjórnina á næstu tveimur vikum
og fá skýr svör við ýmsum spurningum. Í ræðum allra þeirra sem tóku til máls á fundinum kom fram mikil gremja í
garð ríkisstjórnarinnar enda hafa menn ekki gleymt svikum hennar í tengslum við Stöðugleikasáttmálann 2009. Að upplifa viðlíka
vanefndir og þá, var fundarmönnum mikil vonbrigði.
Glærur úr erindi Gylfa Arnbjörnssonar má sjá hér.


