EN
Heim
Hafa samband
08:45| 5. febrúar 2012

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

Forseti ASÍ á fundarferð um landið Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ mun næsta mánuðinn gera víðreist um landið og hitta að máli stjórnir allra 53

Forseti ASÍ á fundarferð um landið

Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ mun næsta mánuðinn gera víðreist um landið og hitta að máli stjórnir allra 53 aðildarfélaga Alþýðusambandsins. Ferðin hefst með fundi í Stykkishólmi og lýkur í Reykjavík þann 15. september. Gylfi mun funda með stjórn FVSA 1. september nk.

Umræðuefni fundanna verður annars vegar afmarkaðar tillögur að breytingum á skipulagi ASÍ og hins vegar mun forsetinn gera grein fyrir samskiptum Alþýðusambandsins við ríkisstjórn og SA á samningstímanum sem nú er að líða.Einnig má búast við að kröfugerð vegna komandi kjarasamninga komi til tals auk Evrópumála.



Könnun

Engin könnun skráð

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 212450

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf