20.01 2012

Fulltrúaráð FVSA sem jafnframt er samninganefnd félagsins kom saman til fundar mánudaginn 9. janúar s.l. Á fundinum var fjallað um stöðuna í kjaramálum vegna uppsagnarákvæðis í kjarasamningum sem dagsett er 20. janúar n.k. Þrátt fyrir mikla óánægju með vanefndir ríkisstjórnarinnar á atriðum sem tengdar eru kjarasamningunum var það skoðun fundarmanna að óráðlagt væri að segja upp samningnunum nú.
Á fundinum var samþykktur listi stjórnar- og fulltrúaráðs vegna kjörs til trúnaðarstarfa fyrir félagið næsta starfsár.
