EN
Heim
Hafa samband
19:57|19. maí 2012

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

Námskeið fyrir einstaklinga með skerta vinnufærni Virk – starfsendurhæfingarsjóður var stofnaður árið 2008 af aðilum vinnumarkaðarins. Helstu

Námskeið fyrir einstaklinga með skerta vinnufærni

Virk – starfsendurhæfingarsjóður var stofnaður árið 2008 af aðilum vinnumarkaðarins. Helstu verkefni Virk eru að veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum starfsendurhæfingarþjónustu og stuðning til að draga úr líkum á því að einstaklingar með heilsubrest detti af vinnumarkaði og styðja þá sem eru utan vinnumarkaðar til að komast þangað aftur. Virk er einnig ætlað að styðja framboð af starfsendurhæfingarúrræðum.


Ráðgjafar Virk – starfsendurhæfingarsjóðs eiga nú virka og árangursríkra samvinnu við einstaklinga sem eru á vinnumarkaði eða hafa áhuga að fara á hann. Í þessu sambandi hefur verið góð samvinna við stéttarfélög, lífeyrissjóði, Tryggingastofnun ríkisins, heilsugæslur, heilbrigðisstofnanir, félagsþjónustu og aðra starfsendurhæfingaraðila á svæðinu.

Í haust verður stigið nýtt skref í þjónustu Virk á Norðurlandi, þegar boðið verður námskeið fyrir þann hóp sem dottið hefur út af vinnumarkaði vegna heilsubrests (þá sem eru á örorkulífeyri/endurhæfingarlífeyri eða í ferli í þá átt).

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að skapa létt og skemmtilegt andrúmsloft, kynna mögulega starfendurhæfingu og virknihvetjandi þjónustu á svæðinu ásamt leiðum til jákvæðs og árangurríks lífsstíls. Ennfremur verða leiðir til úrvinnslu sálrænna áfalla kynntar ásamt sálfsstyrkingu og leiðum til endurkomu á vinnumarkað.

Um er að ræða 10 klst. námskeið (2 klst. á viku, í 5 vikur). Námskeiðið er við allra hæfi og mun fyrsta námskeiðið verða haldið á Akureyri í húsnæði Einingar-Iðju, Skipagötu 14. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og hefst fimmtudaginn 22.september nk.kl. 14:00. Í framhaldinu er stefnt að samskonar námskeiðum á Húsavík, Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og víðar ef eftirspurn verður. Leiðbeinendur á námskeiðunum eru m.a. sérfræðingar Starfsendurhæfingar Norðurlands ásamt ráðgjöfum Virk-starfsendurhæfingarsjóðs á Akureyri.

Undirritaðar veita góðfúslega allar frekari upplýsingar um námskeiðin. Skráning á námskeiðin er þegar hafin hjá ráðgjöfum Virk á Norðurlandi.

Anna Guðný Guðmundsdóttir, anna@ein.is.
Elsa Sigmundsdóttir,
elsa@ein.is
Nicole Kristjánsson,
nicki@ein.is
Skipagötu 14, 600 Akureyri, s: 460 3600



Könnun

Engin könnun skráð

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 12
Samtals: 217305

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf