Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði hafa verið lausir frá lok nóvember 2010. Viðræður gengu brösuglega framan af og fyrir páska stefndi í allsherjarverkfall á almennum vinnumarkaði. Eftir páska hófust viðræður hins vegar að nýju og á síðustu dögum rofaði til. Samkomulag tókst svo eftir langa og erfiða lotu í þessari viku.
Samningur LÍV og SA er til þriggja ára eins og aðrir samningar milli aðildarsamtaka ASÍ og SA. Ákveðinn fyrirvari er á samningum sem tengist stjórnvaldsaðgerðum og lagabreytingum sem þurfa að eiga sér stað fyrir 22. júní 2011. Ef þær forsendur sem snúa að stjórnvöldum standast ekki gildir samningurinn til 1. febrúar 2012. Í samningnum eru einnig hefðbundin forsenduákvæði varðandi launahækkanir árin 2012 og 2013. Hér að neðan er stiklað á stóru í samningnum en samning LÍV og SA má einnig sjá í pdf skjali. Og hér má sjá útdrátt úr yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninga. Hér má sjá samkomulagið sem ASÍ og SA undirrituðu 5. maí
Helstu atriði
Almennarlaunahækkanir á næstu þremur árum eru 11,4% en hækkun lágmarkslauna er þó mun meiri eða 23,6%. 50.000 króna eingreiðsla kemur til útborgunar þegar samningarnir hafa verið samþykktir í atkvæðagreiðslu og aðrar 25.000 krónur í tveimur greiðslum síðar á árinu.
Launabreytingar
Almenn hækkun
1. júní 2011 4,25%
1. febrúar 2012 3,50%
1. febrúar 2013 3,25%
Krónutöluhækkun á taxta
1. júní 2011 kr. 12.000
1. febrúar 2012 kr. 11.000
1. febrúar 2013 kr. 11.000
Lágmarkstekjutrygging í dagvinnu
1. júní 2011 kr. 182.000
1. febrúar 2012 kr. 193.000
1. febrúar 2013 kr. 204.000
Eingreiðslur
Eingreiðsla í júní kr. 50.000 fyrir starfsmann í fullu starfi í mánuðunum mars-maí. Starfsmenn sem létu af störfum í apríl eða eru í hlutastarfi fá hlutfallslega greiðslu miðað við starfstíma í mars og apríl. Starfsmenn sem hófu störf í apríl og verða í starfi til 5. maí fá hlutfallslega greiðslu miðað við starfstíma í apríl og maí.
Álag á orlofsuppbót 2011 kr. 10.000
Álag á desemberuppbót 2011 kr. 15.000
Forsenduákvæði gagnvart ríkisvaldinu verður seinni partinn í júní.
Kjarasamningurinn gildir til 31. janúar 2014, með endurskoðun í janúar 2012 og janúar 2013. Ákveðinn fyrirvari er á samningnum sem tengist stjórnvaldsaðgerðum og lagabreytingum sem þurfa að eiga sér stað fyrir 22. júní 2011. Ef þær forsendur sem snúa að stjórnvöldum standast ekki gildir samningurinn til 1. febrúar 2012.
Önnur ákvæði kjarasamnings öðlast strax gildi óháð því sem gerist við endurskoðun í júní.
Áætla má að heildarkostnaðarauki atvinnurekenda af kjarasamningnum verði um 12,6% á samningstímanum.
Jöfnun lífeyrisréttinda
Samhliða þessum kjarasamningi verður stigið markvisst skref í að jafna lífeyrisréttindi þar sem stefnt er að því að auka framlög í lífeyrissjóði úr 12% í 15,5% á árabilinu 2014-2020. Bókun er um að fyrir árslok 2012 verði komin niðurstaða um samræmt og sjálfbært lífeyriskerfi alls launafólks á vinnumarkaði.
Ítarlegri upplýsingar má einnig fá á heimasíðu ASÍ.


