Umsóknarfrestur um orlofshús, útilegukort og orlofsstyrki vegna sumarleigu er til 20. mars 2012. Sumarleiga orlofshúsa er frá 30.maí til 24.ágúst 2012. Sótt er um orlofshús, útilegukort og orlofsstyrki á félagavefnum.
Einnig verður tekið við umsóknum á skrifstofu FVSA. Umsækjendur fá skriflegt svar um úthlutunina fyrir mánaðamót mars/apríl.
Opnað verður fyrir lausar orlofsvikur á félagavef 4. apríl kl. 12:00.
60 orlofsstyrkir allt að kr. 15.000.- veittir vegna gistikostnaðar á tímabilinu 1. maí til 15. september 2012.
20 útilegukort verða í boði sem valmöguleiki fyrir félagsmenn.
Þá mun félagið, eins og sl. sumar, selja niðurgreidda gistimiða á Edduhótelin víðs vegar um landið. Miðaverð kr. 6.000
Samningur um 25% afslátt af listaverði á 10 Fosshótelum um land allt og 10% afsláttur á gistiheimili í Reykjavík.
Miðar í Hvalfjarðargöng á kr. 635.- stk.
Veiðikortið 2012 á 35 vatnasvæði verður til sölu á skrifstofunni. Verð kr. 4800
Vetrarleiga orlofshúsa og íbúða 2012 og 2013.
Þann 7. ágúst 2012 verður opnað á félagavefnum bókunartímabil frá 24.ágúst 2012 til 30. maí 2013. Hver félagsmaður getur að hámarki bókað tvær bókanir á hverju tímabili. Félagsmenn athugið að vetrarleiga mun kosta orlofspunkta, mis mikið eftir húsum.
Greiða þarf bókun strax á félagavef, en sólarhringur má líða ef bókað er á skrifstofu FVSA, ef greiðsla hefur ekki borist á tilsettum tíma verður bókunin felld niður.
