12.07 2011
Þann 2. ágúst 2011 kl. 9.00 verður opnað á félagavefnum bókunartímabil frá 26. ágúst 2011 til 30. maí 2012. Hver félagsmaður getur að hámarki bókað tvær bókanir á hverju tímabili.
Vetrarleiga kostar orlofspunkta, mis mikið eftir húsum.
Greiða þarf strax á félagavef, en sólarhringur má líða ef bókað er á skrifstofu FVSA, þar til greitt verður, að öðrum kosti verður bókunin felld niður.
Við viljum vekja athygli á því, að í nóvember verða teknar í notkun nýjar íbúðir við Mánatún 3-5 og þá falla íbúðirnar í Ljósheimum 6 út.


