13.12 2011
Í byrjun desember stóð ASÍ fyrir tveimur opnum fundum, annars vegar um háa vexti og verðtrygginguna og hins vegar var því velt upp hvað krónan kostar heimilin í landinu. Báðir þessir fundir voru bornir uppi af erindum Gylfa Arnbjörnssonar og Ólafs Darra Andrasonar. Framsögur þeirra voru ca 20 mín langar á hvorum fundi og eru þær nú komnar á netið ásamt glærum.
Hér má sjá og heyra erindin á opnum fundum ASÍ 1. og 8. desember.


