Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna telur ekki tímabært að segja upp núgildandi kjarasamningi en samþykkti á fundi í hádeginu í dag yfirlýsingu sem birt er í heild hér að neðan.
"Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna lýsir sárum vonbrigðum með að ríkisstjórn Íslands hafi ekki staðið við þau fyrirheit, sem gefin voru með yfirlýsingu hennar við gerð kjarasamninga hinn 5. maí 2011.
Vill stjórnin benda sérstaklega á að sú aðför sem gerð er að almennu lífeyrissjóðunum gengur þvert á gefin fyrirheit um
jöfnun lífeyrisréttinda á íslenskum vinnumarkaði, sem ríkisstjórnin lofaði að hafist yrði handa um. Þá mun það
lengi í minnum haft að ríkisstjórn, sem kennir sig við norræna velferð, skuli svíkja gefin loforð um þá hækkun
atvinnuleysisbóta og aðrar hækkanir almannatrygginga, sem um var samið.
Þrátt fyrir svikin loforð ríkisstjórnarinnar telur stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna ekki tímabært að segja upp núgildandi kjarasamningi. Byggir sú afstaða stjórnarinnar á því að í honum felast verðmæti fyrir verslunar- og skrifstofufólk sem m.a. munu koma til framkvæmda 1. febrúar næstkomandi.
Stjórn LÍV krefst þess af stjórnvöldum og atvinnurekendum að ráðist verði í fjárfestingar sem skili fólkinu í landinu fleiri störfum til framtíðar. Að nýta ekki þau tækifæri sem nú þegar eru til staðar til atvinnuuppbyggingar gerir ekkert annað en að viðhalda þeirri óvissu sem nú ríkir. Fólkið í landinu mun ekki láta sitt eftir liggja, standi ríkisvaldið og atvinnurekendur við sitt!
