EN
Heim
Hafa samband
20:06|19. maí 2012

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

Athugið - lágmarkstekjur fyrir fullt starf Eftirfarandi eru lágmarkstekjur fyrir fullt starf samkvæmt samningi LÍV og SA: Lágmarkstekjur

Athugið - lágmarkstekjur fyrir fullt starf

Athugið - lágmarkstekjur fyrir fullt starf

Eftirfarandi eru lágmarkstekjur fyrir fullt starf samkvæmt samningi LÍV og SA:

Lágmarkstekjur afgreiðslufólks fyrir fullt starf fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa í fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki eru (fullt starf miðar við 171,15 unnar stundir á mánuði eða 39,5 stundir á viku séu samningsbundnir kaffitímar teknir): 

1. mars 2009    kr. 157.000 á mánuði
1. janúar 2010  kr. 162.450 á mánuði

Lágmarkstekjur skrifstofufólks fyrir fullt starf, 162,5 unnar stundir á mánuði eru fyrir starfsmenn 18 ára og eldri:

1. mars 2009    kr. 178.730 á mánuði
1. janúar 2010  kr. 189.230 á mánuði

Mánaðarlega skal greiða uppbót á laun viðkomandi starfsmanna sem ekki ná framangreindum tekjum, en til launa í þessu sambandi teljast allar greiðslur, þ.m.t. hverskonar bónus-, álags- og aukagreiðslur, sem falla til innan ofangreinds vinnutíma. Sjá nánar samning LÍV og SA.Eftirfarandi eru lágmarkstekjur fyrir fullt starf samkvæmt samningi LÍV og FÍS:

Laun fyrir fullt starf fullgildra starfsmanna, 18 ára og eldri að loknum þriggja mánaða reynslutíma, fyrir fullt starf (fullt starf miðar við 57 klst. á mánuði eða 36,15 klst. á viku m.v. að neysluhlé sé ekki tekið), eru:

1. mars 2009    kr. 179.500 á mánuði
1. janúar 2010  kr. 190.000 á mánuði

Þar sem þessu marki verður ekki náð munu samningsaðilar sameiginlega í samvinnu við vinnuveitanda þess starfsmanns sem í hlut á, beita sér fyrir því að viðunandi lausn finnist á kjörum starfsmannsins. Sjá nánar samning LÍV og FÍS.

Könnun

Engin könnun skráð

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 12
Samtals: 217305

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf