EN
Heim
Hafa samband
08:42| 5. febrúar 2012

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

LÍV gerir heildarkjarasamninga við tvenn samtök vinnuveitenda; Samtök atvinnulífsins (SA) og FÍS. Eftir- og yfirvinna samkvæmt samningi LÍV og

Eftirvinnu- og yfirvinnukaup

LÍV gerir heildarkjarasamninga við tvenn samtök vinnuveitenda; Samtök atvinnulífsins (SA) og FÍS.

Eftir- og yfirvinna samkvæmt samningi LÍV og SA

 

Eftirvinna: Greitt er 40% eftirvinnuálag fyrir vinnu starfsfólks utan hefðbundins dagvinnutíma en innan þess tíma sem er skilgreindur sem fullt starf  á mánuði eða 100% starf. Dagvinnutími hjá afgreiðslufólki er kl. 9-18 en hjá skrifstofufólki er hann kl. 9-17. Fullt starf er 171,15 klst. á mánuði hjá afgreiðslufólki og 162,5 klst. hjá skrifstofufólki. 

  • Tímakaup afgreiðslufólks fyrir eftirvinnu er 0,8235% af mánaðalaunum fyrir dagvinnu.
  • Tímakaup skrifstofufólks fyrir eftirvinnu er 0,875% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.

Yfirvinna: Yfirvinna er öll vinna sem er unnin utan hefðbundins dagvinnutíma og umfram 171,15 klst. hjá afgreiðslufólki og 162,5 hjá skrifstofufólki. Tímakaup í yfirvinnu er 1,0385% af föstum mánaðarlaunum.


Yfirvinna samkvæmt samningi LÍV og FÍSYfirvinna er öll vinna sem er unnin utan hefðbundins dagvinnutíma og umfram 157,1 klst. á mánuði sem telst 100% starf. Dagvinnutími samkvæmt þessum samningi er kl. 7-19 alla virka daga.

Tímakaup í yfirvinnu er 1,0385% af föstum mánaðarlaunum hjá þeim sem vinna 100% starf.

Stórhátíðarálag
Stórhátíðarvinna er vinna á nýársdegi, föstudeginum langa, páskadegi, hvítasunnudegi, 17. júní, frídegi verslunarmanna, jóladegi og eftir kl. 12:00 á aðfangadegi og gamlársdegi. Öll vinna sem er unnin á stórhátíðum greiðist með tímakaupi sem nemur 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.

Könnun

Engin könnun skráð

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 212450

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf