Í leigu frá 22.06.2012 til 24.08.2012. Vikuleiga er kr. 19.000.-
Ath árið 2010 var settur heitur pottur við húsið.

Sumarhúsin að Einarsstöðum eru í um 11 kílómetra fjarlægð frá Egilsstöðum en þar er hægt að sækja alla almenna þjónustu, sundlaug, heita potta, matvöruverslanir, flugsamgöngur, lyfjaverslun o.fl.
Lýsing: Húsin eru 45 m2. Í þeim eru 3 svefnherbergi og er svefnaðstaða er fyrir 8 manns. Í tveimur herbergjum eru tvíbreið rúm og koja yfir en í þriðja herberginu eru kojur. Setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Húsunum fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni og salernispappír. Í húsunum er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og útigrill. Barnarúm og stólar og aukadýnur fást hjá umsjónarmanni.
Leigjandi leggur sjálfur til utan um sængurfatnað, handklæði, diskaþurrkur og borðklúta.
Reyklaus bústaður.
Skiptidagar /Lyklar: Orlofshúsin eru leigð viku í senn frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma milli kl. 16:00 og 19:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Lyklar eru í lyklaskáp sem er staðsettur er við útidyr, skal lyklum skilað í lyklaskápinn aftur við brottför.
Gasgrill Já Heitur pottur Já
Viskustykki Já Sjónvarp Já
Handsápa Já Útvarp Já
Uppþvottalögur Já Ísskápur Já
Örbylgjuofn Já Km. í sund. 12
Barnastóll Já Km. í verslun 12
Barnarúm Já
Þvottavél Nei
Umsjónarmaður er Guðni Þór Hermannsson s. 861-8310.
Okkar álit:Þægilegur staður í hjarta Austurlands með mikla möguleika á dagsferðum í allar áttir. Mikil afþreying er í boði á þessu svæði.
Ekki er leyfilegt að hafa heimilisdýr


