Fyrsta skrefið þegar þú ert að undirbúa starfsviðtal eða ert að leita að
vinnu er að útbúa starfsferilskrá. Það sem þarf að koma fram á henni er m.a. eftirfarandi (teljið fyrst upp það
nýjasta):
- Menntun og námsferill, sérstaklega menntun og námskeið sem skipta máli fyrir starfið sem þú ert að sækja um.
- Starfsreynsla, hvaða störfum þú hefur gegnt, hvenær og hvar og hverjar starfsskyldur þínar voru. Það nægir að taka saman upplýsingar um skammtímastörf, s.s. sumarstörf á yngri árum, í eina til tvær setningar.
- Tölvukunnátta.
- Tungumálakunnátta.
- Upplýsingar um persónulega hagi.
- Markmið.
- Meðmælendur, ef óskað er.

