EN
Heim
Hafa samband
08:43| 5. febrúar 2012

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

Lýsing: Þetta er bjálkahús á tveimur hæðum, byggt árið 2001. Miklar breytingar hafa verið gerðar á húsinu frá því það var byggt. Við neðri hæðina

Illugastaðir í Fnjóskadal nr. 19


Lýsing: Þetta er bjálkahús á tveimur hæðum, byggt árið 2001. Miklar breytingar hafa verið gerðar á húsinu frá því það var byggt. Við neðri hæðina er nýbúið er að steypa stóran sólpall með góðri grillaðstöðu, gasgrill er á staðnum. Aðalinngangurinn var færður á neðri hæðina, þar er vel búið eldhús og borðstofa, gufubað og baðherbergi með sturtu. Á efri hæðinni er stofa, tvö svefnherbergi og baðherbergi með sturtu. Svefnrými er fyrir sex manns í húsunum, auk svefnsófa í stofu og borðstofu.  Það er því tilvalið fyrir stórfjölskylduna en hentar ekki síður minni hópum.
Árið 2006 var lokið við að leggja hitaveitu á svæðið og  var þá  lagt vatnshitakerfi í gólf húsa félagsins. Sólpallar voru stækkaðir og heitir pottar settir við húsin.
Rúmföt fylgja, án líns, sem hægt er að leigja hjá umsjónarmanni í þjónustumiðstöð. Á svæðinu er sundlaug með heitum potti, minigolf, barnaleikvöllur og lítil verslun. Klassískur fjölskyldustaður eins og hann gerist bestur hér á landi. Mikið við að vera og óteljandi möguleikar í dagsferðum, gönguferðum og annarri afþreyingu.

Ekki er leyfilegt að hafa heimilisdýr.

Sumar 2012.  vikuleiga er kr. 22.000.-

Leiga vetur 2010 til 2011 Föstudagur til sunnudags Aukanótt Ein nótt Vika
Illugastaðir nr. 19 14.000 kr.  / 5. Punktar 2000 kr. /  1. Punktur 6.500 kr. 22.000 kr. / 7. p

 

Vetur / Koma og brottför: Á fimmtudögum á leigjandi rétt á að koma til dvalar í húsið á milli kl. 15:00 og 18:00 og á föstudögum á milli kl. 15:00 og 21:00.  á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum á milli kl. 15 til 17. Húsið skal rýmt eigi síðar en kl. 15:00 brottfarardag.  Ef leigjandi kemst ekki á tilgreindum komutíma þarf að láta umsjónarmann vita á símatíma, milli kl. 13:00 og 17:00 mánudaga til fimmtudaga.  Sími umsjónarmanns 462-6199. 

Sumar / Skiptidagar: Húsið leigist í eina viku í senn. Afhending til komugesta er milli kl. 16 og 21 á föstudögum en dvalargestir þurfa að afhenda húsið eigi síðar en kl. 12 á skiptidögum.  Ef leigjandi kemst ekki á tilgreindum komutíma þarf að láta umsjónarmann vita á símatíma, milli kl. 13:00 og 17:00 mánudaga til fimmtudaga.  Sími umsjónarmanns 462-6199.    

Lyklar: Afhendast hjá umsjónarmanni á Illugastöðum gegn framvísun leigusamnings.

Okkar álit: Klassískur fjölskyldustaður eins og hann gerist bestur hér á landi. Mikið við að vera og óteljandi möguleikar í dagsferðum, gönguferðum og annarri afþreyingu.

Vetrarleiga: Orlofshúsin á Illugastöðum eru einnig leigð yfir vetrarmánuðina, en þá er um sólarhringsleigu að ræða.

Gott að vita:   Leyfilegt er að keyra að húsum við komu og brottför, á öðrum tímum er hliðið lokað og ekki leyfð umferð nema fyrir þá sem eiga erfitt með gang, þeir fá lykil af hliðinu.
Við komu fær leigutaki tvo borðklúta tvær diskaþurrkur, gólfmoppu og tvær rúllur af wc-pappír, ræstiefni er í húsunum. Gott er að hafa með sér aukatuskur og diskaþurrkur.
Gestir þurfa að hafa með sér handsápu, handklæði uppþvottalög wc-pappír og lín á rúm, hægt er að taka á leigu lín  ( kr. 1.000.- settið) og handklæði (kr. 300.- stk.) Það fylgja ekki gúmmíhanskar.
Hægt er að fá auka dýnur og sængur í Kjarnahúsi.
Það eru til 9 barnaferðarúm og 9 barnastólar, best er að panta þau áður en fólk kemur.
Sundlaug, heitir pottar og gufubað er á staðnum, verð í sund hefur verið mjög stillt í hóf fyrir orlofsgesti.

Könnun

Engin könnun skráð

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 212450

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf