EN
Heim
Hafa samband
08:46| 5. febrúar 2012

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

  Lýsing: Tvö hús í sumarhúsabyggðinni á Illugastöðum í Fnjóskadal. Þetta eru bjálkahús. Svefnrými er fyrir sex manns í húsunum, auk svefnsófa í stofu. 

Illugastaðir í Fnjóskadal nr. 2. og 12.

 

Lýsing: Tvö hús í sumarhúsabyggðinni á Illugastöðum í Fnjóskadal. Þetta eru bjálkahús. Svefnrými er fyrir sex manns í húsunum, auk svefnsófa í stofu.  Árið 2006 var lokið við að leggja hitaveitu á svæðið og því var hægt að leggja vatnshitakerfi í húsin. Sólpallur er við húsin með heitum potti og gasgrilli.   Rúmföt fylgja, án líns, sem hægt er að leigja hjá umsjónarmanni í þjónustumiðstöð. Á svæðinu er sundlaug með heitum potti, minigolf, barnaleikvöllur og lítil verslun. Klassískur fjölskyldustaður eins og hann gerist bestur hér á landi. Mikið við að vera og óteljandi möguleikar í dagsferðum, gönguferðum og annarri afþreyingu.

Helstu upplýsingar um aðstöðu: 1 rúm 140 cm, 2 kojur 80 cm, Svefnsófi í stofu, Sængur 8 stk, koddar 8 stk, Heitur pottur, útvarp/CD, sjónvarp, örbylgjuofn, Bakaraofn.

Ekki er leyfilegt að hafa heimilisdýr.

Sumar / Skiptidagar: Húsin leigjast í eina viku í senn. Afhending húsanna til komugesta er milli kl. 16 og 21 á föstudögum en dvalargestir þurfa að afhenda húsið eigi síðar en kl. 12 á skiptidögum.      Ef leigjandi kemst ekki á tilgreindum komutíma þarf að láta umsjónarmann vita á símatíma, milli kl. 13:00 og 17:00 mánudaga til fimmtudaga. Sími umsjónarmanns 462-6199.  

Sumar 2012.  vikuleiga er kr. 19.000.-

Leiga vetur 2010 til 2011 Föstudagur til sunnudags Aukanótt Ein nótt Vika
Illugastaðir  nr. 2. og 12. 10.000 kr.  / 4. Punktar 2000 kr. / 1. Punktur 6.500 kr. 18.000 kr. / 5. p

 

Vetur / Koma og brottför: Á fimmtudögum á leigjandi rétt á að koma til dvalar í húsið á milli kl. 15:00 og 18:00 og á föstudögum á milli kl. 15:00 og 21:00.  á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum á milli kl. 15 til 17. Húsið skal rýmt eigi síðar en kl. 15:00 brottfarardag.  Ef leigjandi kemst ekki á tilgreindum komutíma þarf að láta umsjónarmann vita á símatíma, milli kl. 13:00 og 17:00 mánudaga til fimmtudaga. Sími umsjónarmanns 462-6199.  

Lyklar: Afhendast hjá umsjónarmanni á Illugastöðum gegn framvísun leigusamnings.

Okkar álit: Klassískur fjölskyldustaður eins og hann gerist bestur hér á landi. Mikið við að vera og óteljandi möguleikar í dagsferðum, gönguferðum og annarri afþreyingu.

Gott að vita:    Leyfilegt er að keyra að húsum við komu og brottför, á öðrum tímum er hliðið lokað og ekki leyfð umferð nema fyrir þá sem eiga erfitt með gang, þeir fá lykil af hliðinu.
Við komu fær leigutaki tvo borðklúta tvær diskaþurrkur, gólfmoppu og tvær rúllur af wc-pappír, ræstiefni er í húsunum. Gott er að hafa með sér aukatuskur og diskaþurrkur.
Gestir þurfa að hafa með sér handsápu, handklæði uppþvottalög wc-pappír og lín á rúm, hægt er að taka á leigu lín  ( kr. 1.000.- settið) og handklæði (kr. 300.- stk.) Það fylgja ekki gúmmíhanskar.
Hægt er að fá auka dýnur og sængur í Kjarnahúsi.
Það eru til 9 barnaferðarúm og 9 barnastólar, best er að panta þau áður en fólk kemur.
Sundlaug, heitir pottar og gufubað er á staðnum, verð í sund hefur verið mjög stillt í hóf fyrir orlofsgesti.

Könnun

Engin könnun skráð

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 212450

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf