EN
Heim
Hafa samband
20:55|22. febrúar 2012

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

Skrifað var undir kjarasamning LÍV og Samtaka atvinnulífsins þann 5. maí 2011. Samningurinn er til þriggja ára að því gefnu að stjórnvöld uppfylli þær

Kjarasamningur FVSA og SA 2011

Skrifað var undir kjarasamning LÍV og Samtaka atvinnulífsins þann 5. maí 2011. Samningurinn er til þriggja ára að því gefnu að stjórnvöld uppfylli þær kröfur sem til þeirra eru gerðar. Samningurinn gerir ráð fyrir 50 þúsund króna eingreiðslu í júní og álag á orlofs- og desemberuppbætur. Almennar  launahækkanir á næstu þremur árum eru 11,4%, lágmarkslaun verða 182 þúsund í júní 2011 og 204 þúsund árið 2013.

Athugið: Samningurinn tekur til um 90% félagsmanna LÍV, þ.e. allra sem starfa samkvæmt samningi við SA. Um 1% starfa samkvæmt samningi við Félag atvinnurekenda, en samningaviðræður við FA standa enn yfir.

Hér að neðan er stiklað á stóru í samningnum við SA.

HELSTU ATRIÐI SAMNINGS LÍV OG SA 2011

Almennar launahækkanir á næstu þremur árum eru 11,4% en hækkun lágmarkslauna er þó mun meiri eða 23,6%. 50.000 króna eingreiðsla kemur til útborgunar þegar samningarnir hafa verið samþykktir í atkvæðagreiðslu og aðrar 25.000 krónur í tveimur greiðslum síðar á árinu.

  • ALMENN HÆKKUN

1. júní 2011 4,25%
1. febrúar 2012 3,50%
1. febrúar 2013 3,25%

  • KRÓNUTÖLUHÆKKUN Á TAXTA

1. júní 2011 kr. 12.000
1. febrúar 2012 kr. 11.000
1. febrúar 2013 kr. 11.000

  • LÁGMARKSTEKJUTRYGGING Í DAGVINNU

1. júní 2011 kr. 182.000
1. febrúar 2012 kr. 193.000
1. febrúar 2013 kr. 204.000

  • EINGREIÐSLUR

Eingreiðsla í júní kr. 50.000 fyrir starfsmann í fullu starfi í mánuðunum mars-maí. Starfsmenn sem létu af störfum í apríl eða eru í hlutastarfi fá hlutfallslega greiðslu miðað við starfstíma í mars og apríl. Starfsmenn sem hófu störf í apríl og verða í starfi til 5. maí fá hlutfallslega greiðslu miðað við starfstíma í apríl og maí.

Álag á orlofsuppbót 2011 kr. 10.000

Álag á desemberuppbót 2011 kr. 15.000

  • SÉRKRÖFUR LÍV

Bætt réttarstaða launþega við gjaldþrotaskipti

Breyting verður gerð á lögum um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum með þeim hætti að launþegar haldi áunnum réttindum sínum varðandi orlof, veikindarétt og uppsagnarfrest, ef skiptastjóri selur þrb. eftir gjaldþrotaskiptin.  Áður var það þannig að launþegar tapa öllum þessum réttindum við gjaldþrotaskiptin.

Starfsmannaviðtal fest enn frekar

Aðilar hafa útbúið fylgiskjal þar sem ítrekað er að þetta viðtal sé eðlilegur hluti vinnusambandsins og hafa sameinast um leiðbeiningar um hvað sé eðlilegt að ræða í slíkum viðtölum, en það er;

  • Helstu verkefni í starfinu.
  • Starfið sjálft og vinnuálag. Þekking starfsmannsins, fjöldi verkefna, verkefnastjórnun og ánægja í starfi.
  • Starfsumhverfi. Starfsskilyrði og vinnuaðstaða.
  • Samskipti. Við vinnufélaga, viðskiptavini og stjórnendur.
  • Upplýsingaflæði. Starfsandinn á vinnustaðnum og endurgjöf næsta yfirmanns til starfsmanns.
  • Starfsþróun og markmið. Núverandi starfssvið, námskeið og markmið til t.d. 12 mánaða.
  • Laun, sé ekki ákveðið að ræða þau sérstaklega, þá síðar innan ársins.
  • Önnur starfskjör.

Bókanir um réttindi starfsmanna og öryggismál afgreiðslufólks í verslunum

Aðilar erum sammála um að nauðsynlegt sé að huga að öryggi starfsmanna í verslunum og í því skyni á að skipa nefnd sem á að koma með tillögur um það efni.  Að þessari vinnu koma aðilar frá lögreglu, öryggisvörsluaðilum, vinnueftirliti og öðrum þeim sem talið er þörf á. 

Sérstaklega skal skoða málefni þeirra sem starfa einir í verslunum og þeirra verslana sem eru með opnanir um kvöld og nætur

Skýra þarf frekar innhald pakkalauna í verslunum

Vinnuveitendur sem notast við svokölluð „pakkalaun“ þe. hafa heildarlaun fyrir mismunandi vinnutíma þurfa nú að skýra enn frekar samsetningu þessara launa, ef  starfsmaður óskar þess.

Fækkun og einföldun á launaflokkum ungmenna

Launaflokkur sem var fyrir yngri en 14 ára var felldur niður og laun 14 og 15 ára ungmenna eru nú tekin sem prósenta af byrjunarlaunum 18 ára, sem einfaldar útreikning þessara launa. 

Bókun um vinnufatnaðí sérverslunum

Sérverslanir með fatnað sem gera þá kröfu að starfsmenn klæðist fatnaði frá versluninni við vinnu sína, leggja til fatnaðinn og er hann þá eign vinnuveitanda.

Hækkun á eftirvinnuálagi á nóttunni, þe frá 00:00 – 07:00 árin 2013 og 2014

Eftirvinnuálag hækkar í kjarasamningi VR/LÍV úr 40% í 45% vegna þessa tímabils þann 1. febrúar 2013 og fer síðan í 50% árið 2014. 

Bókun um réttindi og öryggismál afgreiðslufólks

Samningsaðilar eru sammála um að nauðsynlegt er að tryggja öryggi starfsmanna í verslunum, einkum þar sem opið er á kvöldin og um nætur.  Í því skyni samþykkja VR/LÍV annars vegar og SA hins vegar að skipa nefnd tveggja aðila frá hvorum sem leggi fram tillögur um þetta efni.

  • FORSENDUÆAKVÆÐI GAGNVART RÍKISVALDINU VERÐUR SEINNI PARTINN Í JÚNÍ

Kjarasamningurinn gildir til 31. janúar 2014, með endurskoðun í janúar 2012 og janúar 2013. Ákveðinn fyrirvari er á samningnum sem tengist stjórnvaldsaðgerðum og lagabreytingum sem þurfa að eiga sér stað fyrir 22. júní 2011. Ef þær forsendur sem snúa að stjórnvöldum standast ekki gildir samningurinn til 1. febrúar 2012.

Önnur ákvæði kjarasamnings öðlast strax gildi óháð því sem gerist við endurskoðun í júní.

Áætla má að heildarkostnaðarauki atvinnurekenda af kjarasamningnum verði um 12,6% á samningstímanum.

  • JÖFNUN LÍFEYRISRÉTTINDA

Samhliða þessum kjarasamningi verður stigið markvisst skref í að jafna lífeyrisréttindi þar sem stefnt er að því að auka framlög í lífeyrissjóði úr 12% í 15,5% á árabilinu 2014-2020. Bókun er um að fyrir árslok 2012 verði komin niðurstaða um samræmt og sjálfbært lífeyriskerfi alls launafólks á vinnumarkaði.

HELSTU ÁVINNINGAR SAMNINGSINS

  1. Almenn launahækkun og eingreiðslur vegna tafa á gerð samnings.
  2. Sérstök áhersla á hækkun lægstu launa með hækkun launataxta um allt að 21% og lágmarkstekjutryggingar um 23,6%.
  3. Persónuafsláttur verður verðtryggður frá og með næstu áramótum.
  4. Lagður grunnur að jöfnun lífeyrisréttinda landsmanna með markvissum hætti á árunum 2014-2020 en hér er um að ræða eitt mikilvægasta réttindamál launafólks um áratuga skeið.
  5. Með kjarasamningnum er blásið til sóknar í atvinnulífinu með það að markmiði að draga úr atvinnuleysi, m.a. með ýmsum hvataaðgerðum til að treysta stöðu nýsköpunar og þekkingargreina ásamt orkufrekum iðnaði sem styðji við markmið ASÍ um að auka vægi grænna greina í hagkerfinu.
  6. Átak verður sett af stað í þjónustu við atvinnuleitendur á vegum stéttarfélaganna og menntunarúrræði verða sett á oddinn bæði fyrir yngra fólk og þá sem komnir eru af skólaaldri.
  7. Atvinnuleysisbætur og bætur almannatrygginga fá hliðstæða hækkun og þeir sem eru á lægstu töxtum.
  8. Hækkun framlaga til Fæðingarorlofssjóðs og Ábyrgðarsjóðs launa tryggir launafólki rétt í fæðingarorlofi og launatap í gjaldþrotum fyrirtækja.
  9. Starfsendurhæfingargjald lögfestir réttinn til endurhæfingar gagnvart öllu launafólki og þeim sem eru á örorkubótum lífeyrissjóðanna.
  10. Af hálfu stjórnvalda koma til fjölmargar umbætur til að tryggja réttarstöðu launafólks s.s. við sölu fyrirtækja, framkvæmd útboðsmála og til að hefta svarta atvinnustarfsemi.

Ítarlegri upplýsingar má fá á heimasíðu ASÍ.

Könnun

Engin könnun skráð

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 85
Samtals: 213417

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf