Í leigu frá 15/06 2012 til 17/08 2012. Vikuleiga er kr. 25.000.-
Gæludýr leyfð.

Lýsing:
Kötluholt í Biskupstungum á Suðurlandi
Bústaðurinn er staðsettur í landi Tjarnar rétt við Syðri-Reyki. Mjög stutt frá Reykholti. Bústaðurinn er um 65 fermetrar, svefnherbergi eru 2 auk svefnlofts. Leigjendur verða að taka með sér rúmföt og handklæði. Heitur pottur.
Skiptidagar /Lyklar: Orlofshúsin eru leigð viku í senn frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma milli kl. 16:00 og 21:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Lyklar eru í lyklaskáp sem er staðsettur er við útidyr, skal lyklum skilað í lyklaskápinn aftur við brottför.
Umsjón Brá Guðmundsdóttir sími 693-3469



Helstu upplýsingar
1 hjónarúm Queen size
Tvíbreiður tungusvefnsófi (fyrir tvo)
1 koja neðri dýnan er 90 cm og efri 90 cm (fyrir tvo) auk tveggja dýna undir koju
1 ferðabarnarúm (stöðluð stærð)
1 barnasæng og koddi
Sængur 6 stk. og koddar 6 stk.
Þvottavél, Örbylgjuofn, Gasgrill, DVD, Sjónvarp, Garðhúsgögn,
Reyklaus bústaður.
Útivist og nágrenni
Gott útivistarsvæði með gróinni lóð allt í kring.
Ferðamannastaðir:
Stutt að fara: til nokkurra af þekktustu ferðamannastöðum landsins s.s. Gullfoss og Geysi, Skálholt, Laugarvatn, Þingvelli og Flúðir svo eitthvað sé nefnt.
Afþreying fyrir börn og unglinga:
Sundlaug í Reykholti og Minni-Borg og húsdýrasafnið í Slakka í Laugarási


