Í leigu frá 08.06.2012 til 17.08.2012. Vikuleiga er kr.
29.000.-
Skiptidagar /Lyklar: Orlofshúsin eru leigð viku í senn frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma milli kl. 16:00 og 21:00, brottför í
síðasta lagi kl. 12:00. Lyklar eru í lyklaskáp sem er staðsettur er við útidyr, skal lyklum skilað í lyklaskápinn aftur við
brottför. Umsjónarmaður er Sigurður Sigfússon s. 440-1026
FVSA og Starfsmannafélag N1 hafa náð samkomulagi um skipti á bústað FVSA nr. 12 á Illugastöðum og bústað SN1 nr.
4 í Mýrarskógum við Laugarvatn.

Orlofshúsið er í Mýrarskógum við Laugarvatn
Hús nr. 4
• Svefnpláss er fyrir amk. 10 manns.
• 2 rúm fyrir fjóra einstaklinga.
• 2 kojaur fyrir þrjá einstaklinga.
• Sængur og koddar eru fyrir 7
• Á svefnlofti er þó pláss fyrir fleiri en þar eru 4 dýnur
• Borðbúnaður er fyrir 10 manns.
• Gasgrill.
• Heitur pottur.
• Uppþvottavél.
• Örbylgjuofn.
• 2 sjónvörp
• DVD spilari.
• Útvarp með geislaspilara.
Reyklaus bústaður.
Ekki leyfilegt að hafa heimilisdýr.


Það eru vinsamleg tilmæli að láta ung börn ekki vera á svefnlofti eftirlitslaus og gæta skal varúðar í bröttum stiga
uppá svefnloft. Flóttaleið í neyðartilvikum er í gegnum glugga á svefnlofti. Vinsamlega kynnið ykkur notkun álstiga á gafli
hússins. Á svefnlofti er lítið sjónvarp.
Sameiginleg þvottavél er í geymsluhúsi til afnota fyrir öll húsin
• Við brottför skal húsið þrifið vandlega. Gluggar skulu skildir eftir lokaðir og
húsinu læst.
• Rusl skal setja í ruslagám sem staðsettur er við þvottaplan.
• Þrífa skal heita potta vandlega og vatn skilið eftir í þeim við brottför
• Ísskáp skal þrífa vel og skilja eftir á lægstu stillingu
Geymsluhús
Í geymsluhúsi eru geymd verkfæri og rekstrarvörur fyrir öll húsin. Ef skortur er á einhverjum þeim rekstrarvörum sem húsunum
tilheyra er gestum heimilt að sækja þær í geymsluskúr. Lykill að húsum gengur að skúrnum.
Salerni í skúrnum eru fyrst og fremst hugsuð fyrir gesti á tjaldsvæði. Sameiginleg þvottavél er í skúrnum. Vinsamlega kynnið
ykkur notkunarreglur vélarinnar. Ath. Verkfærageymsla í geymsluskúr er aðeins fyrir stjórn SN1 og umsjónarmann svæðis. Við
geymsluskúr er gasgeymsla. Lykill að húsunum gengur að lásnum. Við geymsluskúr eru söfnunarpokar fyrir áldósir og gler (ekki rusl)
Gasgrill
Gasgrill fylgja öllum húsum SN1 á Laugarvatni. Það eru vinsamleg ábending að umgangast grill og gas með varúð. Grillin skal
þrífa vel við brottför og genga frá með yfirbreiðslu. Skiljið við grill eins og þið mynduð vilja fá þau í hendur.
Gaskútar eru í skáp við geymsluskúr. Lykill að húsum gengur að lás.
Heitir pottar
Heitir pottar eru við öll hús. Látið börn aldrei vera eftirlitslaus í pottum. Hitastýring fyrir pottana er í geymslu í húsum
1,2,3 og 4, Klórtafla í þar til gerðu hylki fylgir hverjum potti.
Látið hylkið með klórtöflunni í vera í potti í eina klst. á hverjum sólarhring. Vinsamlega fylgið þessum
tilmælum
Þrífa skal pott eins oft og þurfa þykir en fyrst og fremst skal honum skilað hreinum til næstu gesta. Pottur skal skilinn eftir með vatni í.
Til að þrífa pott:
Tæmið pottinn með handfangi sem er við hlið potts ( á verönd) í húsum 1,2 og 4. Í húsum 3 og 5 er tæmingarhandfang undir potti
utan verandar. Snúið ¼ úr hring til að tæma og aftur til baka til að láta renna í
Ath. Ekki þarf að skrúfa fyrir vatn á annan hátt en hér er lýst. Skiljið potta eftir með lokið á.
Minigolf
Á leiksvæði við bústaðina er minigolf, 9 brautir
Hverju húsi eiga að fylgja tvær púttkylfur og tveir golfboltar
Látið ung börn ekki vera eftirlitslaus á golfbrautum. Borið hefur við að kylfur séu notaðar í öðrum tilgangi en að slá
kúlur t.d. útiljós á svæði o.s.ftrv.
Vinsamlega fylgist með að kúlur og kylfur skili sér í hús eftir notkun
Golf
Golfklúbburinn Dalbúar rekur 9 holu golfvöll í í landi Miðdals.
Verslun og þjónusta
Verslun Samkaup- Strax er á svæðinu, opnunartími er:
Sumar: 9 - 22 virka daga og 10 - 22 um helgar.
Vetur: 9 - 18 virka dagar og 10 - 18 um helgar.
Sundlaugin er opin alla daga vikunnar frá kl. 9 til 21.
Að Sólheimum í Grímsnesi margt að skoða. Þar er rekin verslun sem selur ýmsar nauðsynjar og einnig margskonar listmuni sem íbúar
Sólheima framleiða sjálfir. Kaffistofa og listasafn er einnig á svæðinu.
Kirkjan í Skálholti er glæsilega bygging. Þar eru oft haldnir tónleikar yfir sumartímann. Steinkista Páls Jónssonar biskups, og saga
Skálholts er í kjallara kirkjunnar
Laugarás er helst þekktur fyrir gróðurhús og framleiðslu á grænmeti en þar er einnig húsdýragarðurinn Slakki þar sem
hægt er að skoða ýmiss húsdýr okkar íslendinga.
Geysir í Haukadal er í hálftíma fjarlægð frá Laugarvatni. Þar er minjagripaverslun, veitingasala og einnig Geysistofa sem sýnir
jarðfræðilegar upplýsingar um Geysisvæðið.
Gullfoss er ekki langt undan.
Sundlaugar :
Glæsileg útisundlaug er á Laugarvatni, tengd íþróttahúsinu. Þá verður einnig að nefna gufubaðið Laugarvatni sem
staðsett er við vatnið
Í Úthlíð er rekin þjónusta við orlofsahúsagesti og m.a. sundlaug, heitir pottar ofl.
Í Reykholti í Biskupstungum er einnig útisundlaug
Gönguleiðir
Margar góðar gönguleiðir eru í nágrenni við orlofshúsin í Mýrarskógum. Fyrst ber að nefna að gamli
þjóðvegurinn að Laugarvatni liggur í gegnum landið og er hluti að heimkeyrslu að bústöðunum. Vegurinn teygir sig í suður frá
bústöðunum og er þægileg gönguleið og endar við heimreiðina að Lækjarhvammi.
Um hálftíma tekur að ganga niður á Laugarvatn sem er í u.þ.b. 2,5 km fjarlægð.
Önnur gönguleið, en ekki eins greiðfær er að ganga í kringum land SN1. Hægt er að fara upp frá gamla þjóðveginum, eftir
veginum að sumarbústöðum sunnan svæðisins og uppfyrir land starfsmannafélagsins, meðfram girðingu og niður með landinu ( ánni) að
norðanverðu. Trappa yfir girðingu er á móts við virkjunina í Eyvindartungu. Ofan girðingar eru vatnsuppsprettur sem m.a. renna í Djúpá
sem rennur meðfram landi SN1 í Laugarvatn. Veiði í Djúpá fylgir húsunum.
Hægt er að ganga uppá Laugardalsfjall vestanverðu, frá veginum upp á Lyngdalsheiði þar sem skíðalyfta er rekin á vetrum.



