
Lýsing: Tvær þriggja herbergja íbúðir í
Ljósheimum 6, sjöttu og sjöundu hæð. Íbúðirnar eru vel búnar og vistlegar. Tvö svefnherbergi eru í hvorri íbúð, góð
stofa, vel búið eldhús og baðherbergi með sturtu. Gistiaðstaða er fyrir sex manns í hvorri íbúð.
Vetur 2011-2012.
| Leiga vetur 2011 til 2012 | Föstudagur til sunnudags | Aukanótt | Ein nótt | Vika |
| Ljósheimar 6, Reykjavík | 14.000 kr. / 5. Punktar | 2000 kr. / 1. Punktur | 6.500 kr. | 22.000 kr. / 7. p |
Vetur / Skiptidagar: Leigjandi á rétt á að koma til dvalar í íbúðina eftir kl. 16. á upphafsdegi leigu. Íbúðin skal rýmd eigi síðar en kl. 13. brottfarardag.
Sumar / Skiptidagar: Íbúðirnar eru leigðar í viku
í senn yfir sumartímann og skipt á miðvikudögum. Íbúðirnar eru til afhendingar kl. 16 en dvalargestir þurfa að skila íbúðunum kl. 13
á skiptidögum. Vikuleiga kr. 18.000.
Lyklar: Afhendast á skrifstofu FVSA.
Okkar álit: Sívinsælar íbúðir,
enda vel staðsettar á höfuðborgarsvæðinu. Verslunarmiðstöðin í Glæsibæ er rétt við húsið og stutt í Laugardalinn,
Skeifuna og fleiri staði.
Helstu upplýsingar um aðstöðu: 3ja
herbergja íbúðir.
| Rúmstæði | 4 | Fjöldi borðbúnaðar | 6-8 |
| Svefnsófi í stofu | 2 | Sjónvarp | Já |
| Sængur | 6 | Útvarp | Já |
| Koddar | 6 | Myndbandstæki | Já |
| Barnarúm | Já | Gestabeddi | 1 |
| Barnastóll | Já |
Taka þarf með sér: Lín á rúm og handklæði.
Athugið! hægt er að leigja lín hjá umsjónarmanni með viku fyrirvara í sími 822-5249.
Ath! Þvottahús er í kjallara.
Ekki er leyfilegt að hafa heimilisdýr í íbúðinni

