Lög Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni
I. Kafli. Heiti félagsins og hlutverk
1.gr. Nafn og hlutverk
Félagið heitir Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, skammstafað FVSA. Félagssvæði þess er Akureyri, Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð og allir hreppar Eyjafjarðarsýslu, ennfremur Svalbarðsstrandar- og Grýtubakkahreppur í Suður-Þingeyjarsýslu. Félagið er aðili að Alþýðusambandi Norðurlands, Landssambandi íslenskra verslunarmanna og Alþýðusambandi Íslands.
Heimili þess og varnarþing er á Akureyri.
2.gr. Tilgangur
· Að sameina allt verslunar- þjónustu- og skrifstofufólk á félagssvæðinu.
· Að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, svo sem með því að semja um kaup og kjör, bættan aðbúnað við vinnu og gæta þess að ekki sé gengið á rétt félagsmanna.
· Að vinna að fræðslu- og menningarmálum.
3.gr. Félagsaðild
Fullgildir félagar geta þeir orðið sem:
· Starfa á starfssviði félagsins sem launþegar.
· Eru fullra 16 ára
· Standa ekki í óbættum sökum við félagið eða önnur stéttarfélög innan ASÍ.
Unglingar geta orðið félagsmenn þó þeir hafi ekki náð 16 ára aldri en njóta þó ekki kjörgengis í félaginu.
Einyrkjar á vinnumarkaði geta orðið félagsmenn en njóta ekki kjörgengis í félaginu. Einyrki telst sá sem starfar einn og hefur ekki aðra menn í vinnu.
4. gr. Innganga í félagið.
Umsækjendur um félagsaðild skulu óska aðildar að félaginu með inntökubeiðnum eða með skilum á gjöldum til félagsins. Aðild nýrra félagsmanna að félaginu skal staðfest af skrifstofu félagsins a.m.k. árlega og skal félagið senda viðkomandi tilkynningu um staðfestingu á inngöngu í félagið. Geri hann ekki athugasemdir um aðild innan 30 daga frá dagsetningu tilkynningarinnar telst hann orðinn félagsmaður.
Ekki er þörf sérstakrar staðfestingar ef fjarvera úr félaginu varir eigi lengur en 24 mánuði samfellt.
Um iðgjöld þeirra sem ekki kjósa að gerast félagsmenn, gilda ákvæði kjarasamninga félagsins á hverjum tíma. Sé vafi um rétt til aðildar skal stjórn úrskurða um málið. Unnt er að skjóta þeirri ákvörðun til úrskurðar trúnaðarráðs félagsins og úrskurði þess til stjórnar LÍV.
II. Kafli. Réttindi og skyldur félagsmanna
5. gr. Réttindi félaga
Réttindi félagsmanna eru:
· Málfrelsi, tillögu- og atkvæðisréttur á fundum félagsins.
· Allir fullgildir félagar hafa kjörgengi til trúnaðarstarfa innan félagsins, þó með þeim undantekningum sem getið er um í 3.gr.
· Réttur til styrkja og greiðslna úr sjóðum félagsins í samræmi við reglur sjóðanna.
· Réttur til að vinna þau störf sem kjarasamningar taka til.
· Réttur til aðstoðar félagsins vegna vanefnda atvinnurekenda á samningum.
6. gr. Skyldur félaga
Skyldur félagsmanna eru:
· Að hlíta lögum félagsins, fundarsköpum, fundarsamþykktum og samningum í öllum greinum.
· Að sjá til þess að félagsgjöld séu dregin af launum sínum.
· Að stuðla að því að ófélagsbundnir menn gangi í félagið og tilkynna til félagsins brot á lögum og samþykktum þess.
7. gr. Úrsögn
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og send skrifstofu félagsins. Enginn getur þó sagt sig úr félaginu eftir að atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun hefur verið auglýst eða ákvörðun um vinnustöðvun hefur verið tekin af félaginu og þar til vinnustöðvuninni hefur verið formlega aflýst. Einnig er óheimilt að segja sig úr félaginu til þess að taka upp störf félagsmanna í öðru félagi er lagt hafa niður vinnu vegna deilu.
8. gr. Félagsgjöld og réttindamissir
Félagsgjöld eru ákveðin á aðalfundi og skulu innheimt sem ákveðið hlutfall af launum en þó er heimilt að ákveða ákveðið hámarksgjald. Taki aðalfundur þessi mál ekki til meðferðar gilda óbreyttar reglur.
Félagsmaður sem skuldar lögboðin gjöld til félagsins fyrir 6 mánuði eða meira, nýtur ekki fullra félagsréttinda, svo sem atkvæðisréttar, kjörgengis né styrkja úr sjóðum félagsins. Félagsréttindi öðlast hann ekki fyrr en skuldin er að fullu greidd.
Sá sem ekki hefur greitt til félagsins í tvö ár skal strikaður út af félagaskrá.
Ákvæði 2. – 4.mgr. gilda ekki um þá félagsmenn sem sýnt geta fram á að iðgjöld þeirra til félagsins hafi verið dregin af launum þeirra skv. reglulega útgefnum launaseðlum enda hafi þeir tilkynnt félaginu um vanskil þeirra iðgjalda án ástæðulausra tafa eftir að þeim urðu vanskilin kunn.
Félagsmenn sem greiða félagsgjöld af atvinnuleysisbótum eða af greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði halda fullum félagsréttindum.
Þrátt fyrir framanskráðar reglur skulu heiðursfélagar halda félagsréttindum sínum án tillits til greiðslu félagsgjalda. Ennfremur skulu þeir sem taka eftirlaun og hafa verið félagsmenn eigi skemur en 5 ár halda félagsréttindum sínum þó þeir hætti störfum, enda hafi þeir ekki gengið í önnur stéttarfélög. Þegar menn verða sjötugir missa þeir þó rétt til að taka þátt í atkvæðagreiðslum um aðalkjarasamninga eða boðun vinnustöðvunar til að knýja fram kjarasamninga, nema þeir sem enn eru á vinnumarkaði.
9. gr. Viðurlög
Ef félagsmaður er sakaður um brot á lögum félagsins skal málið tekið fyrir á stjórnarfundi sem ákveður með einföldum meirihluta atkvæða hvort veita skuli áminningu, eða víkja félagsmanni úr félaginu.
Hver sá maður er brottrækur úr félaginu í lengri eða skemmri tíma sem að áliti stjórnar hefur unnið gegn hagsmunum félagsins, bakað því tjón eða gert því eitthvað til vansa, svo og hver sem ekki hlýðir lögum þess eftir gefna áminningu í félaginu. Skjóta má þeim úrskurði til trúnaðarráðs.
Úrskurði trúnaðarráð um áminningu eða brottvísun félagsmanns má vísa til stjórnar LÍV, eða ASÍ en úrskurður trúnaðarráðs gildir þar til sambandið ákveður annað.
Hafi félagsmanni verið vikið úr félaginu á hann ekki afturkvæmt í félagið nema inntökubeiðni hans sé samþykkt á stjórnarfundi.
III. Kafli. Stjórn og trúnaðarráð
10. gr. Stjórn -Stjórnarkjör
Stjórn félagsins skipa fimm menn, sem skulu kosnir á aðalfundi eða við allsherjaratkvæðagreiðslu. Formaður skal kosinn til tveggja ára í senn, meðstjórnendur skulu kosnir 2 í einu til tveggja ára og ganga árlega 2 úr stjórninni á víxl. Kosnir skulu 3 menn í varastjórn til eins árs í senn, og skulu þeir gegna störfum í forföllum stjórnarmeðlima og taka sæti í stjórn í þeirri röð, sem þeir eru kosnir. Stjórnin kýs sér varaformann, gjaldkera og ritara og skiptir að öðru leyti með sér störfum. Allsherjaratkvæðagreiðslu skal við hafa þegar trúnaðarráð eða lögmætur félagsfundur samþykkir að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu í félaginu. Þegar allsherjaratkvæðagreiðsla er viðhöfð skal fara fram listakosning. Til þess að listi sé löglega fram borinn, þarf meðmæli 60 félagsmanna. Tillögum stjórnar og trúnaðarráðs sameiginlega, þurfa engin meðmæli að fylgja. Að öðru leyti fer kosning fram samkvæmt reglugerð LÍV/ASÍ þar að lútandi.
11. gr. Störf stjórnar
Stjórnin hefur á hendi yfirstjórn allra félagsmála milli félagsfunda. Stjórnin boðar til félagsfunda sbr.18.gr. Hún ræður starfsmenn félagsins, ákveður laun þeirra og vinnuskilyrði. Stjórnin ber sameiginlega ábyrgð á eigum félagsins. Skylt er stjórn félagsins að stuðla að því að allt er varðar sögu félagsins sé sem best varðveitt. Láti félagsmaður af trúnaðarstörfum er hann gegnir fyrir félagið er honum skylt að skila af sér öllum gögnum er trúnaðarstarf hans varðar.
12. gr. Hæfi stjórnarmanna
Stjórnarmenn skulu vera fjár síns ráðandi og uppfylla almenn hæfis skilyrði og mega ekki á sl. 5 árum hafa hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað. Stjórnarmenn mega ekki eiga meira en 5% hlut í hlutafélagi sem er í atvinnurekstri á starfssviði félagsins.
Við meðferð einstakra mála skal stjórnarmaður víkja sæti ef hann hefur hagsmuna að gæta sem kunna að fara í bága við hagsmuni félagsins.
13. gr. Stjórnarfundir
Stjórnin heldur fundi svo oft sem þurfa þykir og skal það er á fundunum gerist skráð í sérstaka gerðarbók. Heimilt er að skrá fundargerðir á rafrænu formi. Að loknu starfsári skulu allar fundargerðir stjórnarfunda teknar saman í hefti í þremur eintökum. Skal eitt eintak geymt á öruggum stað utan skrifstofunnar og tvö hjá félaginu. Stjórnarfundur er lögmætur þegar meirihluti stjórnarmanna sækir fund. Formaður sér um að boða til funda og stjórnar þeim.
Varaformaður gegnir skyldum formanns í forföllum hans.
Halda skal fund ef a.m.k. 2 stjórnarmenn óska þess.
14. gr. Trúnaðarráð
Trúnaðarráð skal vera starfandi í félaginu. Í ráðinu sitja stjórnarmenn og varamenn stjórnar félagsins,auk 13 fullgildra félagsmanna, 5 þeirra skulu kosnir eftir sömu reglum og til sama tíma og stjórn og 5 til vara. 8 félagsmenn og 4 til vara sem trúnaðarmenn félagsins kjósa árlega úr sínum hópi .
Í forföllum aðalmanna taka varamenn sæti í trúnaðarráði í þeirri röð sem þeir eru kosnir.
Formaður félagsins skal vera formaður trúnaðarráðs. Formaður kveður trúnaðarráð til funda með a.m.k. sólarhrings fyrirvara. Skylt er formanni að boða til trúnaðarráðsfundar ef þriðjungur trúnaðarráðs óskar þess og tilgreinir fundarefni. Trúnaðarráðsfundur er löglegur ef meirihluti ráðsmanna mætir, eða varamenn þeirra. Formaður getur í nafni félagsstjórnar kallað saman trúnaðarráð stjórninni til aðstoðar þegar ýmis vandamál ber að höndum og ekki eru tök á að ná saman félagsfundi, einfaldur meirihluti ræður úrslitum í slíkum málum.
Trúnaðarráð kýs samninganefnd félagsins í samræmi við 16. gr. hér að neðan og ber ábyrgð á kjarasamningagerð þess. Einnig skal trúnaðarráð skipa kjörstjórn þegar við á skv. 17.gr.
15. gr. Trúnaðarmenn
Stjórn félagsins skipar trúnaðarmenn á vinnustöðum eða staðfestir skipun þeirra ef kosning hefur farið fram.
Trúnaðarmenn skulu starfa eftir erindisbréfi er stjórn félagsins setur þeim.
Á árlegum fundi trúnaðarmanna skulu þeir kjósa úr sínum hópi 8 aðalmenn og 4 til vara í trúnaðarráð félagsins.
Trúnaðarmenn skulu hafa eftirlit með að lögum félagsins, samþykktum og samningum sé hlýtt.
Trúnaðarmenn eru tengiliðir starfsmanna á viðkomandi vinnustað við stjórn og starfsmenn félagsins.
Að öðru leyti fer um starfsemi, réttindi og skyldur trúnaðarmanna að lögum og kjarasamningi félagsins.
16. gr. Samninganefnd
Samninganefnd skal vera starfandi í félaginu. Hlutverk hennar er að annast um kjarasamningagerð fyrir hönd félagsins. Nefndin skal kjörin af trúnaðarráði, í henni skulu eiga sæti minnst 13 menn. Formaður félagsins skal vera formaður samninganefndar. Samninganefnd er heimilt að skipta með sér verkum eftir samningssviðum.
17. gr. Kjörstjórn
Kjörstjórn skal vera starfandi í félaginu. Hlutverk hennar er að annast stjórnarkjör, stjórna atkvæðagreiðslum um kjarasamninga, verkföll og allsherjaratkvæðagreiðslur skv. lögum félagsins, lögum ASÍ og reglugerðum settum samkvæmt þeim.
Kjörstjórnin skal kjörin á aðalfundi og í henni skulu eiga sæti tveir menn og tveir til vara. Við stjórnun atkvæðagreiðslna um kjarasamninga og verkföll skipar trúnaðarráð þriðja stjórnarmanninn og skal hann vera formaður kjörstjórnar.
Við stjórnun allsherjaratkvæðagreiðslna um önnur atriði skv.lögum félagsins og/eða lögum LÍV/ASÍ skipar miðstjórn ASÍ þriðja kjörstjórnarmanninn og skal hann vera formaður kjörstjórnar.
IV. Kafli
Fundir og stjórnarkjör
18. gr. Félagsfundir
Félagsfundir skulu haldnir þegar félagsstjórn álítur þess þörf eða minnst 30 fullgildir félagsmenn óska þess við stjórn félagsins og tilgreina fundarefni.
Fundir skulu boðaðir með minnst sólarhrings fyrirvara með uppfestum auglýsingum, í fjölmiðlum,bréflega, eða á annan sannanlegan hátt. Þó má í sambandi við vinnudeilur boða fund með skemmri fyrirvara. Fundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað.
Fundum félagsins skal stjórnað eftir almennum fundarsköpum. Ágreiningsatriði um fundarsköp úrskurðar fundarstjóri hverju sinni með rökstuddum úrskurði. Óski einstakur félagsmaður eftir skriflegri atkvæðagreiðslu á félagsfundi er fundarstjóra skylt að verða við þeirri ósk.
19. gr. Aðalfundur
Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir mars lok ár hvert. Aðalfundur skal boðaður með dagskrá, með minnst 7 daga fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
o Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
o Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu.
o Lagabreytingar ef fyrir liggja.
o Kosning stjórnar- og trúnaðarráðs, nema kosning hafi farið fram fyrir aðalfund með allsherjaratkvæðagreiðslu.
o Kosning formanns samkvæmt 10.gr.
o Kosning 2ja meðstjórnenda til tveggja ára.
o Kosning 3ja manna í varastjórn til eins árs.
o Kosning 5 manna í trúnaðarráð til eins árs.
o Kosning 5 varamanna í trúnaðarráð til eins árs.
o Kynnt niðurstaða frá kjöri trúnaðarmanna á 8 aðalmönnum og 4 til vara í trúnaðarráð til eins árs sbr.15.gr.
o Kosning 2ja félagslegra skoðunarmanna og tveggja til vara.
o Kosning löggilts endurskoðanda félagsins.
o Kosning tveggja manna í kjörstjórn og tveggja til vara
o Lýst stjórnarkjöri.
o Önnur mál.
20. gr. Kjör á þing LÍV og ASÍ
Um kosningu fulltrúa á þing Landssambands íslenskra verslunarmanna og Alþýðusambandsþing er heimilt að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu og skal hún fara eftir reglugerð LÍV/ASÍ þar um.
V Kafli Fjármál
21. gr. Útgjöld
Af tekjum félagsins skal greiða öll útgjöld þess. Við meiriháttar ráðstafanir á eignum félagsins þarf samþykki stjórnar.
22. gr. Skoðunarmenn og löggilt endurskoðun sjóða félagsins.
Tveir félagslegir skoðunarmenn skulu yfirfara reikninga félagsins fyrir liðið reikningsár og gera athugasemdir sínar við þá. Skoðunarmenn eru kosnir á aðalfundi.
Auk athugunar hinna félagskjörnu skoðunarmanna er stjórn félagsins skylt að láta löggiltan endurskoðanda endurskoða reikninga og fjárreiður félagsins í lok hvers reikningsárs. Reikningar félagsins skulu liggja frammi til skoðunar fyrir félagsmenn 7 dögum fyrir aðalfund. Löggiltan endurskoðanda félagsins skal kjósa á aðalfundi félagsins.
23. gr. Sjóðir
Sjóðir í eigu og vörslu félagsins eru
o Félagssjóður
o Sjúkrasjóður
o Orlofssjóður
o Fræðslusjóður
o Vinnudeilusjóður
Í reglugerð sjóðanna skal tilgreina hlutverk, tekjur, hvernig greiðslum úr sjóðnum er háttað og annað það er viðkemur rekstri sjóðanna.
Stjórn félagsins er stjórn sjóðanna en heimilt er að skipa sérstaka rekstrarstjórn um hvern fyrir sig.
Sjóðir félagsins skulu ávaxtaðir á tryggan hátt í ríkisskuldabréfum, ríkistryggðum skuldabréfum, í bönkum eða sparisjóðum, í skuldabréfum tryggðum með veði í fasteign eða á annan hátt er stjórn félagsins metur tryggan og sem samræmist reglum ASÍ þar að lútandi.
Félagssjóður greiðir allan almennan kostnað af starfsemi félagsins en þó skulu aðrir sjóðir standa straum af kostnaði hvers þeirra um sig skv. reglugerðum þeirra
Um fjármál félagsins fer skv. lögum og viðmiðunarreglum ASÍ.
VI. Kafli Lagabreytingar
24. gr.
Lögum þessum verður eigi breytt nema á lögmætum aðalfundi. Heimilt er þó á aðalfundi eða framhaldsaðalfundi að vísa lagabreytingum til allsherjaratkvæðagreiðslu.
Í fundarboði skal þess getið að lagabreytingar séu á dagskrá.
Tillögum um lagabreytingar skal skilað til félagsstjórnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.
Allar lagabreytingar skulu liggja frammi á skrifstofu félagsins í 7 daga fyrir aðalfund.
Til lagabreytinga þarf samþykki 2/3 greiddra atkvæða. Breytingar á lögunum koma þá fyrst til framkvæmda er miðstjórn ASÍ og stjórn LÍV hafa staðfest þær.
VII. Kafli Félagsslit
25. gr.
Félaginu verður ekki slitið nema 3/4 allra félagsmanna samþykki það að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. Verði samþykkt að leggja félagið niður skal ASÍ varðveita eignir þess þar til annað stéttarfélag er stofnað með sama tilgangi á félagssvæðinu. Fær það félag þá umráð eignanna að áskildu samþykki miðstjórnar ASÍ. Um sameiningu félaga skal fjallað á sama hátt og lagabreytingar.
Um úrsögn félagsins úr ASÍ eða samtökum sem aðild eiga að því fer samkvæmt lögum ASÍ.
Lög félagsins Þannig samþykkt á aðalfundi 28. febrúar 2011.

