Sé starfsmaður ráðinn til lengri tíma en eins mánaðar og að meðaltali lengur en 8 klst. á viku, skal eigi síðar en tveim mánuðum eftir að starf hefst gerður skriflegur ráðningarsamningur eða ráðning staðfest skriflega. Láti starfsmaður af störfum áður en tveggja mánaða frestinum lýkur, án þess að skriflegur ráðningarsamningur hafi verið gerður eða ráðning staðfest skriflega, skal slík staðfesting látin í té við starfslok.
Breytingar á ráðningarkjörum
Breytingar á ráðningarkjörum umfram það sem leiðir af lögum eða kjarasamningum skal staðfesta með sama hætti [sbr. 1.10.1] eigi síðar en mánuði eftir að þær koma til framkvæmda.
Samningurinn sjálfur
Hér er sýnishorn af ráðningarsamningi sem þú getur fyllt út á skjánum og prentað út. Til að opna samninginn og vinna í honum þarftu að hafa forritið Acrobat Reader.


