EN
Heim
Hafa samband
08:38| 5. febrúar 2012

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

  Opnað verður fyrir umsóknir á sumarleigu 2012 þann 15. febrúar. Umsóknarfrestur um orlofshús, útilegukort og orlofsstyrki vegna sumarleigu er til 20.

Leiga orlofshúsa 2011 og 2012

 

Opnað verður fyrir umsóknir á sumarleigu 2012 þann 15. febrúar.

Umsóknarfrestur um orlofshús, útilegukort og orlofsstyrki vegna sumarleigu er til 20. mars 2012. Sumarleiga orlofshúsa er frá 30.maí til 24.ágúst 2012. Sótt er um orlofshús, útilegukort og orlofsstyrki á félagavefnum.

Einnig verður tekið við umsóknum á skrifstofu FVSA. Umsækjendur fá skriflegt svar um úthlutunina fyrir mánaðamót mars/apríl.

Opnað verður fyrir lausar orlofsvikur á félagavef 4. apríl kl. 12:00.

60 orlofsstyrkir allt að kr. 15.000.- veittir vegna gistikostnaðar á tímabilinu 1. maí til 15. september 2012.

20 útilegukort verða í boði sem valmöguleiki fyrir félagsmenn.

Þá mun félagið, eins og sl. sumar, selja niðurgreidda gistimiða á Edduhótelin víðs vegar um landið. Miðaverð kr. 6.000

Samningur um 25% afslátt af listaverði á 10 Fosshótelum um land allt og 10% afsláttur á gistiheimili í Reykjavík.

Miðar í Hvalfjarðargöng á kr. 635.- stk.

Veiðikortið 2012 á 35 vatnasvæði verður til sölu á skrifstofunni. Verð kr. 4800

Vetrarleiga orlofshúsa og íbúða 2012 og 2013.

Þann 7. ágúst 2012 verður opnað á félagavefnum bókunartímabil frá 24.ágúst 2012 til 30. maí 2013. Hver félagsmaður getur að hámarki bókað tvær bókanir á hverju tímabili. Félagsmenn athugið að vetrarleiga mun kosta orlofspunkta, mis mikið eftir húsum.

Greiða þarf bókun strax á félagavef, en sólarhringur má líða ef bókað er á skrifstofu FVSA, ef greiðsla hefur ekki borist á tilsettum tíma verður bókunin felld niður.

 

 

 

 

Leiga vetur 2011 til 2012 Föstudagur til sunnudags Aukanótt Ein nótt Vika
Reykjavík 3 herb, íbúð 14.000 kr.  / 5. Punktar 2000 kr. /  1.Punktur 6500 22.000 kr. / 7. p
Reykjavík 4 herb, íbúð 18.000 kr.  / 6. Punktar 2500 kr. /  1.Punktur 7000 28.000 kr. / 8. p
Skógarsel í Vaglaskógi 23.000 kr.  / 8. Punktar 3500 kr. /  2.Punktur 8000 39.000 kr. / 10. p
Illugastaðir nr. 19 14.000 kr.  / 5. Punktar 2000 kr. /  1.Punktur 6500 22.000 kr. / 7. p
Illugastaðir  nr. 2. og 12. 10.000 kr.  / 4. Punktar 2000 kr. /  1.Punktur 6500 18.000 kr. / 5. p
 

 

Könnun

Engin könnun skráð

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 212450

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf