Orlofsárið er frá 1. maí - 30. apríl ár hvert og skal orlof tekið í samráði við vinnuveitanda. Á orlofstímanum frá 2. maí - 15. september eiga allir rétt á 24 daga orlofi jafnvel þó þeir eigi ekki rétt til orlofslauna allan þann tíma hjá vinnuveitanda. Til orlofsdaga teljast aðeins virkir dagar. Greiða skal út orlof við starfslok.
LÍV gerir heildarkjarasamninga við tvenn samtök vinnuveitenda; SA og FÍS, og eru ákvæði um orlofsrétt mismunandi eftir þessum tveimur samningum.
Orlofsréttur samkvæmt samningi LÍV og SA 2008 Lágmarksorlof er 24 virkir dagar (tveir orlofsdagar ávinnast fyrir hvern unninn mánuð á orlofsárinu). Orlofslaun eru 10,17% af heildarlaunum.
- Eftir 5 ár í sömu starfsgrein skal starfsmaður hafa 25 daga orlof og skulu orlofslaun vera 10,64%.
- Eftir 5 ár í sama fyrirtæki skal starfsmaður hafa 27 daga orlof og skulu orlofslaun vera 11,59%.
- Eftir 10 ár í sama fyrirtæki skal starfsmaður hafa 30 daga orlof og skulu orlofslaun vera 13,04%.
Áunninn réttur vegna starfa í sama fyrirtæki endurnýjast eftir þriggja ára starf hjá nýju fyrirtæki, enda hafi hann verið sannreyndur.
Heimilt er að veita orlof umfram 20 daga að vetri nema um annað hafi samist
Frí í stað desember- og orlofsuppbóta
Heimilt er með samkomulagi milli starfsmanns og vinnuveitanda að fella niður eða lækka orlofs- og/eða desemberuppbót og veita samsvarandi frí í staðinn. Það frí skal veita í heilum eða hálfum dögum.
Dæmi: Starfsmaður hefur kr. 150.000 fyrir fullt starf. Dagkaup hans er því kr. 6.922 (150.000/21,67). Orlofsuppbót er kr. 15.900 árið 2004. Fyrir orlofsuppbótina geta starfsmaður og vinnuveitandi samið um að starfsmaðurinn fái tvo frídaga á launum (kr. 6.922 x 2) auk þess sem greiddar eru kr. 2.056 sem eftistöðvar af orlofsuppbót.
- Eftir 5 ár í sömu starfsgrein skal starfsmaður hafa 25 daga orlof og skulu orlofslaun vera 10,64%.
- Eftir 5 ár í sama fyrirtæki skal starfsmaður hafa 27 daga orlof og skulu orlofslaun vera 11,59% frá 1. maí 2008.
- Eftir 10 ár í sama fyrirtæki skal starfsmaður hafa 30 daga orlof og skulu orlofslaun vera 13,04% frá 1. maí 2008.
Áunninn réttur vegna starfa í sama fyrirtæki endurnýjast eftir þriggja ára starf hjá nýju fyrirtæki, enda hafi hann verið sannreyndur. Heimilt er að veita orlof umfram 20 daga að vetri nema um annað hafi samist.

