Orlofsuppbót er:
- Kr. 20.300 árið 2011. Á árinu 2011 greiðist sérstakt álag á orlofsuppbót, kr. 10.000
- Kr. 19.500 árið 2010
- Kr. 19.000 árið 2009
Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattar og skyldur, félagsgjöld og lífeyrissjóður greiðast af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina.
Uppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi fyrstu viku í maí.
Orlofsuppbót innifelur orlof, eru föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
Ávinnsla orlofsuppbótar í fæðingarorlofi
Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning orlofsuppbótar. Sama gildir ef kona þarf af öryggisástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.
Heimilt er með samkomulagi milli starfsmanns og vinnuveitanda að fella niður eða lækka orlofsuppbót og veita samsvarandi frí í staðinn, sem tekur mið af launum hvers og eins. Frí þetta skal veita í heilum eða hálfum dögum.

