EN
Heim
Hafa samband
08:40| 5. febrúar 2012

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

    Lýsing: Nýtt og glæsilegt sumarhús 153 fermetrar að stærð á einni hæð.  Húsið stendur á bökkum Fnjóskár og í miðjum Vaglaskógi. Í því eru fjögur

Skógarsel í Vaglaskógi

   

Lýsing: Nýtt og glæsilegt sumarhús 153 fermetrar að stærð á einni hæð.  Húsið stendur á bökkum Fnjóskár og í miðjum Vaglaskógi. Í því eru fjögur svefnherbergi, góð stofa, eldhús með öllum búnaði, borðstofa,  2 baðherbergi, þvottaherbergi. Gistipláss er fyrir tólf manns. Rúmföt fylgja en án líns. Við húsið er stór afgirtur sólpallur, þar er heitur pottur og gasgrill.  Umhverfis húsið er stór girtur garður og í honum eru barnaleiktæki. Á lóðinni er  hægt að tengja hjólhýsi, húsbíla og fellihýsi við rafmagn. Öll helstu heimilistæki eru í húsinu, en til viðbótar þeim sem hefðbundin geta talist í orlofshúsum, eru þvottavél, þurrkari og uppþvottavél. Hafa þarf með sér lín á rúm og handklæði.

 

Sumar 2012 vikuleiga er kr. 40.000.-



Vetur 2011-2012

 

Leiga vetur 2010 til 2011 Föstudagur til sunnudags Aukanótt Ein nótt Vika
Skógarsel í Vaglaskógi 23.000 kr.  / 8. Punktar 3500 kr. /  2. Punktur 8.000 kr. 39.000 kr. / 10. p

 

Vetur / Koma og brottför: Leigjandi á rétt á að koma til dvalar í húsið eftir kl.16:00. Húsið skal rýmt eigi síðar en kl. 16:00 brottfarardag.

 

SUMAR / Skiptidagar: Húsið leigist í eina viku í senn. Afhending hússins til komugesta er kl. 17:00 á föstudögum, en dvalargestir þurfa að afhenda húsið kl. 12:00 á skiptidögum. Vikuleiga kr. 37.000.

Lyklar: Afhendast á skrifstofu FVSA. 

Okkar álit: Frábært umhverfi, veðursæll og rómaður staður fyrir fjölskylduna. Hægt að tjalda á lóðinni og því er þetta staður stórfjölskyldunnar.

 

Ekki er leyfilegt að hafa heimilisdýr

 

Hér má finna fleiri myndir

 

Könnun

Engin könnun skráð

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 212450

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf