Sé starfsmanni falið að starfa í öðru landi í einn mánuð eða lengur skal hann fá skriflega staðfestingu ráðningar fyrir
brottför. Auk almennra upplýsinga, eins og greint er frá hér að ofan, skal eftirfarandi koma fram:
- Áætlaður starfstími erlendis.
- Í hvaða gjaldmiðli laun eru greidd.
- Uppbætur eða hlunnindi sem tengjast starfi erlendis.
- Eftir atvikum skilyrði þess að starfsmaður geti snúið aftur til heimalandsins.


