EN
Heim
Hafa samband
08:36| 5. febrúar 2012

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

Veikist starfsmaður í orlofi innanlands það alvarlega að hann geti ekki notið orlofsins skal hann á sannanlegan hátt á fyrsta degi, t.d. með símskeyti,

Veikindi í orlofi

Veikist starfsmaður í orlofi innanlands það alvarlega að hann geti ekki notið orlofsins skal hann á sannanlegan hátt á fyrsta degi, t.d. með símskeyti, tilkynna vinnuveitanda um veikindin og hjá hvaða lækni hann hyggst fá læknisvottorð.

Sama gildir ef starfsmaður veikist í landi innan EES-svæðisins, Sviss, Bandaríkjunum eða Kanada það alvarlega að það leiði til sjúkrahússvistar (einn eða fleiri daga).

Fullnægi starfsmaðurinn tilkynningarskyldunni og standi veikindin samfellt lengur en í 3 sólarhringa innanlands eða 6 sólarhringa innan EES-svæðisins, Sviss, Bandaríkjunum eða Kanada, á hann rétt á uppbótarorlofi jafn langan tíma og veikindin sannanlega vöruðu. Undir framangreindum kringumstæðum skal starfsmaður ávallt færa sönnur á veikindi sín með læknisvottorði.

Uppbótarorlof skal, eftir því sem kostur er, veitt á þeim tíma sem launþegi óskar og skal veitt á tímabilinu 2. maí til 15. september, nema sérstaklega standi á.

Könnun

Engin könnun skráð

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 212450

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf