Eftirfarandi ákvæði eru eiga almennt við um vinnu barna og unglinga:
Unglingar á aldrinum 15-17 ára mega vinna flest störf nema þau sema teljast hættuleg eða líkamlega mjög erfið. Þeir mega ekki vinna með hættuleg efni eða vélar.
- Börn á aldrinum 13-14 ára mega vinna létt og hættulaus störf eins og t.d þjónustustörf.
- Börn yngri en 13 ára mega ekki vinna langan tíma á hverjum degi og þá aðeins við mjög létt störf eins og t.d. við menningu, listir og íþróttaviðburði. N
- Næturvinna barna og unglinga er bönnuð.
- Samkvæmt lögum eiga börn og unglingar (fram til 18 ára aldurs) að fá tvo frídaga í viku.
- Vinna barna og unglinga skal fara fram undir eftirliti einstaklings sem er orðinn 18 ára.
Vinnutími unglinga 15-18 ára
- Vinnutími má vera 8 klst. á dag eða 40 klst. á viku á þeim tíma þegar skóli er ekki.
- Á skóladegi mega 15 ára unglingar vinna 2 klst. á dag eða 12 klst. á viku að hámarki.
- Unglingar mega aldrei vinna frá kl. 24:00-04:00.
- Hvíldartími unglinga er 12-14 klst. á sólarhring, (14 klst. fyrir 13-14 ára og fyrir 15 ára börn í skyldunámi en 12 klst. fyrir unglinga 15-17 ára).

