34. þing LÍV

34. þing Landssambands íslenzkra verzlunarmanna var sett á Reykjavík Hótel Grand í gær, fimmtudaginn 30. október 2025. Eiður Stefánsson, formaður LÍV og FVSA setti þingið og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, ávarpaði þingfulltrúa. 

Umfjöllunarefni þingsins eru meðal annars gervigreind, niðurskurðarstefna og lífeyrissjóðsmál. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands heldur erindi um gervigreind á vinnustöðum og Hannah Peaker, aðstoðarframkvæmdastjóri New Economics Foundation, fjallar um niðurskurðarstefnu.  

Alls eiga 105 fulltrúar hvaðanæva af landinu seturétt á þinginu, þar af á FVSA sex fulltrúa.

Kosningar fóru fram á öðrum þingdegi. Eiður Stefánsson, formaður FVSA, var sjálfkjörinn formaður LÍV til næstu tveggja ára, 2025- 2027. 

Í aðalstjórn til næstu tveggja ára voru kjörin:

Halla Gunnarsdóttir, VR
Hjörtur Geirmundsson, Verslunarmannafélag Skagafjarðar
Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir, VR 
Ólafur Reimar Gunnarsson, VR 
Birgitta Ragnarsdóttir, VR
Kolbrún Júlía Erlendsdóttir, VR

Í varastjórn til næstu tveggja ára voru kjörin:

Ellen Rós Baldvinsdóttir, VR
Aðalsteinn J. Halldórsson, Framsýn
Hulda Björnsdóttir, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri
Andrea Rut Pálsdóttir, VR
Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir, AFL starfsgreinafélag
Malini Elavazhagan, VR
Þórir Hilmarsson, VR

Helstu málefni sem voru til umræðu á þinginu voru niðurskurðarstefna og gervigreind og má sjá ályktanir um þau hér fyrir neðan. Þá var einnig ályktað um leikskólamál og öryggismál  verslunarfólks og má sjá ályktanirnar hér fyrir neðan.