Ánægja félagsmanna með þjónustu FVSA.

Í skoðanakönnuninni sem Gallup framkvæmdi fyrir FVSA var spurt um hversu ánægt eða óánægt fólk var með þjónustu FVSA. Niðurstaða könnunar var að 83,7% svarenda var ánægður, 12,5% svaraði hvorki né og einungis 3,8% svarenda var óánægður. Af þessum má sjá að félagsmenn FVSA eru almennt ánægðir með þjónustu félagsins, en meðaltalseinkunin var 4,2, af 5 mögulegum sem er hæsta einkunn sem stéttarfélög hafa fengið. Þökkum félagsmönnum kærlega fyrir það.