ATH: skráning netfanga

Kæru félagsmenn,

Nú þegar mörg ykkar eru að sækja um orlofshús fyrir sumarið er mikilvægt að netfang ykkar sé rétt skráð inni á félagavefnum. Tilkynningar frá félaginu eru sendar á skráð netföng, t.d. staðfestingar á umsókn um orlofshús ásamt leigusamningum. Einnig stendur til að senda út viðhorfs- og kjaramálakönnun til félagsmanna og því óskum við eftir því að félagsmenn fari yfir sína skráningu.

Ef þið lendið í vandræðum með að skrá ykkur inn á félagavefinn megið þið gjarnan hafa samband við skrifstofu félagsins í síma 455-1050 eða með því að senda tölvupóst á netfangið fvsa@fvsa.is