Bjarg - Íbúðafélag opnar fyrir skráningu

Á morgun mun Bjarg-Íbúðafélag opna fyrir skráningar á biðlista eftir leiguíbúðum.
Eingöngu verður hægt að skrá sig rafrænt í gegnum “mínar síður” á heimasíðu Bjargs, www.bjargibudafelag.is og á heimasíðunni er einnig að finna allar helstu upplýsingar. Á síðunni er einnig gott að kíkja á “spurt&svarað” ef einhverjar spurningar vakna.