Bókanir orlofshúsa fyrir og eftir áramót

Bókanir orlofshúsa fyrir og eftir áramót

Félagið hefur tekið í notkun nýjan félagavef og þar með nýtt orlofshúsabókunarkerfi. Við vekjum athygli á að bókanir orlofshúsa eru því sem hér segir: 

Bókanir leiga fyrir áramót

Bókanir leiga í desember fara fram í gegnum eldri félagavef, sjá link hér. Opið er fyrir bókanir fram að áramótum inni á þessari síðu.

Bókanir leiga eftir áramót

Bókanir leiga fyrir tímabilið janúar - maí fara fram í gegnum nýja félagavefinn, sjá link hér. Athugið að opnað verður fyrir leigur á þessu tímabili á eftirtöldum dagsetningum:

  • Sumarhús (Illugastaðir, Gráhraun og Skógarsel): Þriðjudaginn 16. des. kl. 12:00
  • Íbúðir í Mánatúni Reykjavík: Miðvikudaginn 17. des. kl. 12:00

Um bókanir mun gilda fyrstur bókar fyrstur fær og hvetjum við félagsfólk til þess að kynna sér vel hvernig bóka á í gegnum nýja félagavefinn, sjá leiðbeiningar hér.