Ert þú búin að svara skoðanakönnuninni?

Þín kjör - taktu þátt!

Við minnum félagsmenn á að síðasti séns til að svara skoðanakönnun félagsins er 21. mars. Markmiðið er að kanna hug félagsmanna til FVSA og komandi kjarasamninga. Hvoru tveggja er mikilvægt og því vonumst við til þess að sem flestir gefi sér tíma til þess að svara. Könnunin er gerð af Gallup, niðurstöður verða kynntar á félagsfundi þann 27. apríl.

Fékkstu ekki póst?
Þeir félagsmenn sem ekki hafa fengið tölvupóst með link á könnunina geta óskað eftir link með því að senda póst fyrir föstudaginn 18. mars á fvsa@fvsa.is, með nafni, kennitölu, netfangi og símanúmeri.