Ert þú félagsmaður FVSA á aldrinum 18-35 ára ?

Félagið leitar að áhugsömum félagsmönnum til að fara sem fulltrúar félagsins á 5. þing ASÍ-UNG sem haldið verður föstudaginn 14. september 2018  á Icelandair Hotel Reykjavik Natura að Nauthólsvegi, 101 Reykjavík.

Áhugasamir vinsamlega hafið samband við skrifstofu FVSA í síma 455 1050 eða fvsa@fvsa.is fyrir miðvikudaginn 22. ágúst 2018.

Meðal helstu verkefna ASÍ–UNG er að kynna ungu fólki á vinnumarkaði réttindi þeirra og skyldur og starfsemi stéttarfélaganna, beita sér í málaflokkum sem snerta ungar barnafjölskyldur og standa vörð um sjónarmið ungs fólks gagnvart stjórnvöldum.

Þá er ASÍ-UNG ætlað að tryggja að hugað sé að stöðu og hagsmunum ungs launafólks í stefnu verkalýðshreyfingarinnar og að rödd unga fólksins heyrist í starfi og stefnumótun stéttarfélaganna.