Fréttir af kjaramálum frá formanni

Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni (FVSA) er aðili að Landssambandi íslenskra verslunarmanna (LÍV).  Þann 22. febrúar tók LÍV ákvörðun um að vísa kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins (SA) til ríkissáttasemjara.  Þegar þetta er skrifað þann 5. mars standa yfir viðræður við SA hjá sáttasemjara en viðræður ganga hægt og við erum ekki búin að boða verkföll að svo komnu. 

Með bestu kveðju
Eiður Stefánsson
Formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni