Fulltrúakjör FVSA

Félag verslunar - og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni auglýsir eftir listum um kjör fulltrúa á 43. þing ASÍ að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. 

Listar með fimm aðalfulltrúum og fimm til vara á þing ASÍ sem haldið verður Hótel Nordica, Reykjavík 24. - 26. október 2018.

Hverjum lista skulu fylgja meðmæli 60 fullgildra félagsmanna.
Listum skal skila á skrifstofu FVSA eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi 18. september 2018.