Hurðin er læst en samt er opið hjá okkur!

Á meðan neyðarstig varir vegna útbreiðslu COVID-19 mun félagið eingöngu veita félagsmönnum fjarþjónustu. Þetta er gert með velferð félagsmanna og starfsmanna í huga. Við munum takmarka aðgengi að skrifstofum félagsins frá og með morgundeginum 31. mars og um óákveðinn tíma. Starfsfólkið verður samt á sínum stað og mun sinna erindum félagsmanna í gegnum síma og tölvupóst á hefðbundnum opnunartíma. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Sími félagsins er 455 1050 og netfangið er fvsa@fvsa.is 

Ef erindið er áríðandi og ekki hægt að leysa með símtali eða með rafrænum hætti er hægt að hafa samband og við leysum málið saman.

Skil á gögnum
Hægt er að senda gögn í pósti á skrifstofur félagsins, einnig má setja þau í póstkassa sem finna má við innganginn á skrifstofu félagsins á 3. hæð Alþýðuhússins.

Jafnframt má senda gögnin rafrænt með tilheyrandi fylgiskjölum á fvsa@fvsa.is. Vinsamlegast sendið bankaupplýsingar umsækjanda, ef við á. 

Allar upplýsingar um styrki og tilheyrandi eyðublöð er hægt að finna á heimasíðu félagsins