Kjósum um kjarasamninga

Rafræn atkvæðagreiðsla félagsmanna FVSA um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda hefst á morgun 11. apríl kl. 9:00 og lýkur 15. apríl kl. 12:00.

Kosning fer fram á fvsa.is. Innskráning á kjörseðil er með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Ef þú ert ekki með Íslykil eða rafræn skilríki sækir þú um á island.is.