Kosning um kjarasamninga er hafin

Ágæti félagsmaður í Félagi verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni og LÍV

Nýr kjarasamningur aðildarfélaga LÍV og Samtaka atvinnulífsins var undirritaður þann 3. apríl sl.

Atkvæðagreiðslan hófst fimmtudaginn 11. apríl kl. 09:00 og stendur til hádegis þann 15. apríl næstkomandi.

Atkvæðagreiðslan er rafræn og fer fram á www.fvsa.is

Samningurinn felur í sér nýja nálgun til bættra lífskjara. Áhersla á kjarabætur til þeirra sem hafa lægstu launin er rauði þráðurinn í samningnum en um það er almenn sátt í samfélaginu. Samið var um krónutöluhækkanir eins og lagt var upp með í upphafi samningaviðræðna en auk þess eru launahækkanir að hluta tengdar þróun hagvaxtar og er gert ráð  fyrir árlegri endurskoðun taxtalauna í ljósi launaþróunar á almennum vinnumarkaði. Þá er vinnuvikan stytt, en það var eitt helsta áherslumál LÍV í samningaviðræðunum, og sveigjanleiki aukinn. Eitt meginmarkmið samningsins er að stuðla að vaxtalækkun sem eykur ráðstöfunartekjur heimilanna. Gildistími samningsins er frá 1. apríl 2019 til 1. nóvember 2022. Sjá helstu atriði samningsins hér.

Ákvörðunin er ykkar, félagsmanna. Ég hvet alla til að kynna sér samninginn, nýta atkvæðisrétt sinn og taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Hvert atkvæði skiptir máli!

Með kveðju

Eiður Stefánsson
Formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Dear member of Félagi verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni og LÍV

A new collective agreement was signed between LÍV and SA Confederation of Icelandic Enterprise on 3. April.

Voting begins on Thursday 11. April and runs until noon on 15. April.
The voting is electronic and will be accessible from www.fvsa.is

This agreement has a new approach that is aimed at improving living standards. The main emphasis is on compensation for those who have the lowest salary in compliance with the mood of society today. It was our intention from the start  of negotiations to get a wage increase in fixed króna amounts but also to have it partly linked to the development of economic growth. Also our tariff rate will be annual re-evaluated in the light of wage developments in the private sector. Further, the work week is shortened, which was one of LÍV main issues during the negotiations, and working hour flexibility is increased. One of the main goals of the agreement is to promote interest rate cuts that should increase household disposable income. The agreement period is from 1. April 2019 to 1. November 2022.See the main points of the agreement here.

LÍV members, the decision is yours. I urge everyone to study the agreement, exercise their voting rights, and vote. Every single vote counts!

With regards

Eiður Stefánsson 
Chairman of Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni