Kvennaráðstefna ASÍ 2022 - Fitjum upp á nýtt

Um 45 konur komu saman á kvennaráðstefnu ASÍ í Borgarfirði

Kvennaráðstefna ASÍ „Fitjum upp á nýtt“ var haldin dagana 7. og 8. apríl síðastliðinn undir yfirskriftinni „Örugg afkoma og velferð kvenna“. Meginmarkmið ráðstefnunnar var að efla tengslanet kvenna og styrkja konur til meiri áhrifa innan verkalýðshreyfingarinnar. Í fyrsta sinn í 106 ára sögu Alþýðusambandsins er kvennaráðstefnan haldin undir forystu kvenforseta. Í karllægri verkalýðshreyfingu skiptir máli að konur séu í forsvari til jafns við karla.

Innlegg þátttakenda, sem flutt voru á ráðstefnunni, sneru að öryggi kvenna á vinnustöðum, vanmati á vinnuframlagi kvenna, bæði launuðu og ólaunuðu, og afkomu kvenna á efri árum.

Alls sóttu um 45 konur ráðstefnuna. Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni átti þrjá fulltrúa á ráðstefnunni; Eydísi Bjarnadóttur, Sirrý Laxdal og Maríu Rut Dýrfjörð. Þær segja mikinn samtakamátt og samhljóm hafa einkennt ráðstefnuna, innlegg þátttakenda voru fróðleg og umræður málefnalegar.