Við vekjum athygli á að vegna forfalla er laust á Húsafelli dagana 1. - 8. október. Verð á leigunni er 36.400 kr.
Orlofshús félagsins á Húsafelli er nýlegt, með þremur svefnherbergjum og gestahúsi, alls er svefnpláss fyrir átta til níu manns í húsinu. Heitur pottur er á stórum sólpalli í stórkostlegri náttúrfegurð Húsafells sem býður upp á fjölbreytta útivistarmöguleika.
Í þessu húsi eru gæludýr leyfð.
Bókanir fara fram í gegnum félagavefinn eða með því að hafa samband við skrifstofu FVSA í síma 455-1050.