Laust í sumarhúsum félagsins fram á vor

Við vekjum athygli á að töluvert er um lausar helgar í sumarhúsum félagsins á Illugastöðum, í Vaglaskógi og á Húsafelli fram á vor. Til að leigja orlofshús skráir félagsmaður sig inn á Mínar síður á félagavefnum með rafrænum skilríkjum.

Efst í valstiku er lítið merki með húsi þar sem stendur Orlofskerfi, þegar klikkað er á það opnast yfirlit yfir framboð orlofshúsa. Hægt er að velja tímabil á dagatalinu, svæði og stakar orlofseignir. Til að bóka orlofseign er klikkað á upphafsdag leigu í framboðsdagatali, við það opnast gluggi og í honum er fellilisti þar sem lokadagur leigu er valinn. Því næst er haldið áfram í greiðsluferli þar sem leiga er staðgreidd með korti.

Athugið að helgarleiga í sumarhúsum félagsins er: 

  • Illugastaðir: föstudagur til mánudags (hægt að bæta við dögum á undan og eftir helginni)
  • Skógarsel: fimmtudagur til mánudags (hægt að bæta við dögum á undan og eftir helginni)
  • Gráhraun: vikuleiga, skiptidagur á miðvikudögum

Við hvetjum félagsfólk til þess að hafa samband í síma 455-1050 ef það þarf aðstoð við að bóka.