Lyfta í Alþýðuhúsinu endurnýjuð

Tilkynning 2. febrúar: ný lyfta hefur verið tekin í notkun.

Mánudaginn 12. janúar hefjast fræmvæmdir við endurnýjun á lyftu í Alþýðuhúsinu, en skrifstofa félagsins er staðsett þar á þriðju hæð. Áætlað er að fræmkvæmdir geti tekið allt að fimm vikur og verður aðgengi að skrifstofunni því takmarkað við stiga á þeim tíma.

Búast má við þó nokkru ónæði vegna framkvæmdanna og biðlum við til gesta að að sýna aðgát við heimsókn í Alþýðuhúsið.

Við minnum félagsfólk á að nú fara allar umsóknir um styrki í gegnum nýjan félagavef https://mitt.fvsa.is þar sem félagsmaður skráir sig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum. Leiðbeiningar um umsóknarferli vegna umsókna um styrki og bókanir orlofshúsa má finna hér.

Hægt er að hafa samband við skrifstofu félagsins í síma 455-1050 og í gegnum fvsa@fvsa.is á opnunartíma: mánudaga - fimmtudaga 08:00-16:00 og föstudaga kl. 08:00-13:00.