Nýr kjarasamningur samþykktur

Nýr kjarasamningur samþykktur 

Rafrænni atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins (SA) lauk á hádegi í dag og var hann samþykktur með 90.82% greiddra atkvæða.

Alls voru 1.905 á kjörskrá Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, þar af nýttu 523 atkvæðisrétt sinn og kjörsókn því 27.45%. Alls samþykktu 475 samninginn, eða 90.82% þeirra sem kusu, 41 höfnuðu samningnum eða 7.84% og 7 tóku ekki afstöðu, eða 1.34%. 

Samningur um kaup og kjör starfsmanna við afgreiðslu- og þjónustustörf á bensínafgreiðslustöðum, sem er hluti af aðalkjarasamningi LÍV/FVSA við SA, er þar með einnig samþykktur. 


Samningur við Félag atvinnurekenda einnig samþykktur 

Atkvæðagreiðslu um nýjan samning við Félag atvinnurekenda lauk einnig í dag og var sá samningur samþykktur með 100% greiddra atkvæða. Alls voru 36 félagsmenn FVSA sem fá laun greidd samkvæmt þeim samning á kjörskrá og kusu 16 þeirra öll með samningnum, eða 44.44%.