Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni hefur tekið í notkun nýtt félaga- og orlofskerfi sem nefnist Total. Samhliða fær félagsfólk aðgang að nýjum félagavef þar sem það getur séð yfirlit yfir félagsgjöld og réttindi í sjóðum, aðgang að orlofshúsakerfi ofl.
Allar umsóknir um styrki, sjúkradagpeninga og bókanir orlofshúsa fara héðan í frá gegnum nýja félagavefinn. Innskráningarsíðan er https://mitt.fvsa.is þar sem félagsfólk skráir sig inn á “Mínar síður” með rafrænum skilríkjum.
Ýtarlegar leiðbeiningar um notkun félagavefsins má finna hér.
Við hvetjum félagsfólk til að fara inn á “Mínar síður” inni á https://mitt.fvsa.is og uppfæra upplýsingar eins og t.d. símanúmer, netfang og bankaupplýsingar. Einnig er möguleiki að skrá starfsheiti og starfsstöð t.d. ef viðkomandi starfar hjá fyrirtæki með margar starfsstöðvar.
Athugið að opnað verður fyrir orlofshúsabókanir fyrir tímabilið janúar - maí 2026 eins og hér segir:
Um bókanir mun gilda fyrstur bókar fyrstur fær og hvetjum við félagsfólk til þess að kynna sér vel hvernig bóka á í gegnum nýja félagavefinn.