Opnað fyrir vetrarleigu til og með 29. október

Við vekjum athygli á opnun fyrir vetrarleigu til og með 29. október. 

Vegna innleiðingar á nýju orlofshúsakerfi var aðeins opnað fyrir vetrarleigu fram til 17. september 2025 samhliða sumarleigunni. Tekin hefur verið ákvörðun um að framlengja opnun fyrir vetrarleigu til og með miðvikudeginum 29. október og mun sem fyrr gilda fyrstur bókar - fyrstur fær:

  • Þriðjudaginn 24. júní kl. 12:00 verður opnað fyrir leigu orlofshúsa á tímabilinu 17. september - 29. október 2025
  • Opnað verður fyrir vetrarleigu 2025/2026 um leið og nýtt orlofshúsakerfi er orðið virkt. Nánari dagsetning fyrir bókanir verður auglýst sérstaklega þegar þar að kemur.

Ekki verður tekið við beiðnum um biðlista fyrir vetrarleigu sem hefst eftir 29. október. Við hvetjum félagsfólk til þess að fylgja okkur t.d. á Facebook og skoða vef félagsins til að fá fréttir af því hvenær nýja orlofshúsakerfið verður opnað.

Einnig er gott að ganga úr skugga um að netfang sé rétt skráð inni á félagavefnum, en við munum senda út tilkynningu á netföng félagsfólks um opnunina.

Leiðbeiningar um skráningu netfangs á félagavefinn má finna hér.