Saga félagsins öllum aðgengileg

Saga FVSA í 90 ár 

Fyrir síðastliðinn aðalfund var haldið útgáfuhóf í tilefni af því að saga félagsins er komin út. Aðdragandann að útgáfunni má rekja til þess að í nóvember 2016 samþykkti stjórn FVSA að skipa ritnefnd með það að markmiði að rita og varðveita sögu félagsins. Í ritnefnd voru Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, sem jafnframt var formaður nefndarinnar, Páll H. Jónsson, Kristín Þorgilsdóttir og Erla Halls. Það var Jón Þ. Þór sem sá um ritun bókarinnar og Bragi V. Bergmann ritaði viðauka ásamt því að sinna ritstjórn. 

Sækjum við að settu marki

Titill bókarinnar Sækjum við að settu marki er lína úr ljóði eftir Heiðrek Guðmundsson frá Sandi, en hann var félagsmaður FVSA og formaður á árunum 1946 til 1947. Um bókina segir: 

Hér er rakin saga Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni allt frá stofnárinu 1930 til dagsins í dag. Sögð er saga stórfelldra þjóðfélagsbreytinga og lífskjarabyltingar. Með órjúfandi samtakamætti náðu félagsmenn smám saman að tryggja sér öll þau réttindi sem okkur þykja svo sjálfsögð í dag.

Í bókinni er lýst þeim gífurlegu áhrifum sem tækniþróunin hefur haft á störf verslunar- og skrifstofufólks og þeim miklu breytingum sem orðið hafa í verslun og viðskiptum á félagssvæðinu.

Saga í máli og myndum

Bókin er ríkulega myndskreytt yfir 500 myndum m.a. af formönnum og stjórnum félagsins frá upphafi, auk mynda frá félagsstarfi og þróun samfélagsins í gegnum 90 ára sögu FVSA. Guðjón Heimir Sigurðsson sá um umbrot og myndvinnslu.

Bókin öllum aðgengileg

Bókin er öllum aðgengileg rafrænt og sem hljóðbók þeim að kostnaðarlausu. Auk þess geta áskrifendur hjá Storytel hlustað á bókina þar. Um lestur sá Guðni Kolbeinsson, hljóðupptaka fór fram í Stúdíó Harmur.

Lesa eða hlusta á bókina hér

Verklokum fagnað

Það var Kristín Þorgilsdóttir sem fylgdi bókinni úr hlaði með ávarpi fyrir hönd ritnefndarinnar á útgáfuhófinu. Í máli hennar kom fram þakklæti til þeirra sem lögðu til aðstoð við verkið, sem spannar alls fimm ára vinnu. „Ég vona að við öll getum haft gagn og gaman af lestri þessarar fallegu bókar.“ sagði Kristín, en hún lauk ræðu sinni með því að lesa erindi úr ljóðinu Afmælisljóð eftir Heiðrek Guðmundsson.

Afmælisljóð
Sækjum við að settu marki,
seint þó miði – og fremur skammt,
beinum þangað björtum augum,
best er að ná því aldrei samt.
Höf. Heiðrekur Guðmundsson frá Sandi